Verkalýðsdagurinn var haldinn hátíðlegur um allt land í gær og þingmenn okkar sóttu ýmsa viðburði. Samfylkingarfélagið í Reykjavík stóð fyrir einum slíkum. Í tilefni af Kvennaári sem fjölmörg samtök standa fyrir voru fengnar þrjár ræðukonur, þær Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarstjóri, Birgitta Ragnarsdóttir, stjórnarkona í ASÍ-ung og Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar og forsætisráðherra.
Kristrún Frostadóttir opnaði ræðuna sína svona:
„Fyrir mér er 1. maí dagur stolts og virðingar. Stolts og virðingar fyrir hinn almenna launamann. Áminning um að saman erum við sterk. Og að með samstöðu hefur verkalýðshreyfingin mótað samfélag okkar í þágu alþýðu manna. Það var svo langt frá því að vera sjálfgefið þegar fyrstu stéttarfélögin voru stofnuð á Íslandi fyrir meira en 100 árum. Þá var þorri almennings enn í fjötrum fátæktar, réttleysis og niðurlægingar – en frelsið aðeins fyrir fámenna yfirstétt í landinu.”
Kristján Þórður Snæbjarnarson, fyrrum forseti ASÍ, tók þátt í vöfflukaffi Ungra jafnaðarmanna (UJ) sem fór fram á Hallveigarstíg. Dagur B. Eggertsson og Sigurþóra Bergsdóttir létu sig ekki vanta í vöfflurnar.
Þar var staða launafólks rædd, mikilvægi baráttudags launafólks og hvernig hart hefur verið sótt að þeim frá upphafi. Ræddar voru þær áskoranir sem blasa við launafólki og samfélaginu. Févíti og félagsleg undirboð og hversu mikilvægt er að koma í veg fyrir að brotið sé á fólki og að það verði aldrei án afleiðinga. Kjaragliðnun öryrkja og aldraðra var líka rædd auk fleiri mála sem eru í vinnslu á Alþingi.

Arna Lára Jónsdóttir tók þátt í kröfugöngu og hátíðardagskrá á Ísafirði. Þar var, líka í tilefni af Kvennaári, lögð sérstök áhersla á stöðu kvenna á vinnumarkaði. Dagskráin var borin uppi af mestu af fjölmörgum konum úr þessu góða samfélagi.
Stórgóðar ræður í anda 1. maí voru haldnar í bland við frábæran tónlistarflutning. Allt eins og best var á kosið og venju samkvæmt.

