Steinunn nýr formaður Kvennahreyfingarinnar

Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir er nýr formaður Kvennahreyfingar Samfylkingarinnar, en hreyfingin hélt aðalfund sinn fyrir setningu landsfundar Samfylkingarinnar á dögunum.

Á aðalfundinum var ný stjórn kjörin, en auk Steinunnar eru Birgitta Ásbjörnsdóttir, Eyrún Fríða Árnadóttir og Agla Arnars Katrínardóttir kjörnar í stjórn hreyfingarinnar og Valgerður Halldórsdóttir, Hrund Valsdóttir og Magnea Marinósdóttir í varastjórn. Að auki var Dagbjört Hákonardóttir tilnefnd frá þingflokki Samfylkingarinnar í stjórn Kvennahreyfingarinnar.

Steinunn tekur við formennsku í Kvennahreyfingunni af Hildi Rós Guðbjargardóttur, sem hefur verið formaður frá árinu 2022.

Þess má til gamans geta að Steinunn er þriðja Steinunnin sem gegnir formennsku í hreyfingunni, en Steinunn Valdís Óskarsdóttir og Steinunn Ýr Einarsdóttir hafa einnig verið formenn Kvennahreyfingarinnar, sem stofnuð var árið 2005.

Discover more from KRATINN

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading