Borgarmálin: Samfylkingin mælist vel yfir kjörfylgi

Maskína birti í síðustu viku nýja könnun um fylgi flokka í borgarstjórn Reykjavíkur. Samfylkingin mældist með 25,3 prósenta fylgi í könnuninni.

Fyrirsagnir fréttamiðla fjölluðu flestar um það að Sjálfstæðisflokkurinn væri „langstærstur“ (með 31,8 prósenta fylgi) eða þá að fimm flokka meirihlutinn sem Samfylkingin leiðir væri „fallinn“.

Lítið var vikið að því að fylgi Samfylkingarinnar mælist umtalsvert meira en við fengum í Reykjavík árið 2022, eða rúmum fimm prósentustigum yfir kjörfylginu þá. Um það bil einn af hverjum fjórum kjósendum í Reykjavík segja að þeir myndu setja x við S nú.

Ef niðurstöður kosninga yrðu í takt við þessa niðurstöðu fengjum við sjö kjörna fulltrúa, tveimur fleiri en við höfum nú. Sjálfstæðisflokkurinn fengi átta fulltrúa, Viðreisn og Sósíalistar tvo fulltrúa hvor flokkur og fjórir flokkar til viðbótar einungis einn mann kjörinn.

Frá því að þing kom saman í vetur hafa verið haldnir reglulegir hádegisfundir borgarfulltrúa, þingmanna okkar í Reykjavík og fulltrúa aðildarfélaga Samfylkingarinnar í Reykjavík til að ræða málefni borgarinnar.

Þetta hafa verið góðir fundir, enda mikilvægt að það sé virkt samtal milli þingmanna, borgarfulltrúa og svo grasrótarinnar í flokknum í höfuðborginni, þar sem við ætlum að sækja til sigurs, eins og um allt land, í komandi sveitarstjórnarkosningum.

Discover more from KRATINN

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading