Páskafrí: Sprettganga og Suðurlandstúr

Enn er páskafrí á Alþingi en þingmenn hafa nýtt tímann í að rækta tengslin í sínum kjördæmum. Arna Lára Jónsdóttir er fyrir vestan, þar sem hún meðal annars afgreiddi í Aldrei fór ég suður versluninni og sigraði Maríu Rut þingmann Viðreisnar í sprettgöngu, eins og sjá má á myndinni hér að ofan.

Eydís Ásbjörnsdóttir lét sig ekki vanta á merkilegan fótboltaleik! FHL – Valur fór fram á Reyðarfirði en þetta er fyrsti heimaleikur í úrvalsdeild á Austurlandi í rúm 30 ár!

Suðurlandstúr með Ásu Berglindi

Ása Berglind Hjálmarsdóttir var á faraldsfæti enda kjördæmið hennar stórt en hún heimsótti meðal annars Garðyrkjuskólann, Fjölbrautaskóla Suðurlands og Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum.

Dagsferð um uppsveitir Árnessýslu í boði Ásu Berglindar:

Ása Berglind var ekki bara í vinnutengdum heimsóknum. Hún naut líka kjördæmis síns. Svo mikið að hún vildi deila uppskrift af þeirri nautn með lesendum Kratans. Gefum henni orðið:

Ég naut þess að vera í uppsveitum Árnessýslu um páskana, sumarhúsi afa á himneskum stað nálægt Laugarvatni þar sem Grafará rennur um lóðina og gróðursældin algjör. Eins og oft áður þá tókum við rúnt um sveitirnar og nutum þess mikla framboðs sem er af afþreyingu og veitingastöðum sem hafa byggst upp síðustu 10-15 árin vegna ferðaþjónustunnar. Mig langar að deila með ykkur nærandi uppskrift fyrir líkama og sál, að góðum degi í uppsveitum Árnessýslu sem tilvalið er að nýta nú þegar sumarið er að bresta á.

Hér er tímasett plan, svona til að auðvelda skipulagið!

Fyrsta stopp kl. 11: Græna kannan á Sólheimum í Grímsnesi

Tilvalinn staður fyrir góðan kaffibolla og eitthvað meððí á fallega kaffihúsinu á Sólheimum þar sem er hægt að skoða listmuni í leiðinni og jafnvel kaupa lífrænt ræktað grænmeti. Þau opna kl. 11. Oftar en ekki er mikið um að vera um helgar á Sólheimum, tónleikar eða leiksýningar.

Annað stopp kl. 13: Gróðrarstöðin Storð í Laugarási

Korters keyrsla frá Sólheimum. Hér er hægt að kaupa tré, runna, fjölærar plöntur, matjurtir og sumarblóm svo eitthvað sé nefnt. Tilvalið að taka með heim svona í upphafi sumars.

Þriðja stopp kl. 14: Gamla laugin á Flúðum, eða Secret lagoon

20 mín. Akstur frá Laugarási. Dásamleg heit náttúruleg laug, sú elsta segja þeir. Hér er hægt að slaka á í passlega heitri laug, með drykk eða ekki. Nýlega er búið að bæta við heitum grunnum potti.

Fjórða stopp kl. 16: Sólskinsbúðin á Flúðum

Hér er hægt að kaupa gæðafæði beint frá bónda, grænmeti, bústnar kryddjurtir og allskonar íslenska framleiðslu til að taka með heim, njóta næstu daga og setja í frysti fyrir grillpartý sumarsins.

Fimmta stopp kl. 17: Vínstofan á Friðheimum í Reykholti

12 mín. akstur frá Flúðum. Flest þekkja Friðheima þar sem hægt er að sitja á milli tómatplantanna og njóta þess að borða tómatsúpu með nýbökuðu brauði. Ekki alveg jafn margir vita að fjölskyldan á Friðheimum er búin að opna nýjan veitingastað sem heitir Vínstofan og er líka inn í gróðurhúsi og alveg einstaklega fallegu umhverfi, þar sem blóm og bækur eru í aðalhlutverki. Þar eru margir ljúffengir réttir á matseðli og mjög huggulegt útisvæði.

Sjötta og síðasta stopp kl. 20: Göngutúr í Laugarvatnsskógi

20 mín. Akstur frá Friðheimum. Laugarvatnsskógur er í brekkunni fyrir ofan Laugarvatnsþorpið og teygir sig til vesturs fyrir ofan veginn um Lyngdalsheiði og til austurs inn fyrir tjaldsvæðið á Laugarvatni. Aðgengilegir stígar liggja um skóginn, meðal annars frá tjaldmiðstöðinni á Laugarvatni.

Þá er tilvalið að enda daginn á að keyra í kvöldsólinni um Þingvelli í áttina til Reykjavíkur, þ.e.a.s. ef leiðin liggur þangað.

Ég vona að þið nýtið ykkur þetta dagsplan og ef svo, þá megið þið endilega senda mér línu og segja mér frá ykkar upplifun.

Gleðilegt sumar!”

Discover more from KRATINN

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading