Vernd launafólks gegn misneytingu styrkt og þolendur mansals mun betur settir

Dvalarleyfisfrumvarp Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra var afgreitt úr ríkisstjórn 27. október og var tekið til umfjöllunar á Alþingi á mánudag. Samkvæmt ráðuneytinu felur það í sér viðamestu breytingar á kerfinu í áratug. Markmiðið er að færa reglurnar nær því sem gildir á öðrum Norðurlöndum, styrkja auðkenningu umsækjenda og bæta réttarstöðu fólks í viðkvæmri stöðu.

Einn veigamesti þáttur frumvarpsins er nýtt tímabundið dvalarleyfi fyrir þolendur misneytingar eða alvarlegra vinnumarkaðsbrota. Heimilt yrði, að uppfylltum skilyrðum, að veita allt að tólf mánaða leyfi svo fólk gæti fundið annað starf og leitað réttar síns.

Þannig á ótti við missi dvalarréttar síður að halda fólki föstu við skaðlegar aðstæður. Launamaður sem sætir brotum þarf raunhæfa leið til að yfirgefa atvinnurekandann og sækja rétt sinn. Vinnandi fólk á að njóta verndar laganna óháð uppruna og atvinnurekendur eiga ekki að geta byggt samkeppnisforskot á réttindaleysi starfsfólks.

Styrkir stöðu þolenda mannsals

Frumvarpið styrkir einnig stöðu þolenda mansals. Það að koma hingað til að vinna, en lenda í mansali, ætti ekki að rjúfa ávinnslu réttar til ótímabundins dvalarleyfis. Þá er lagt til að afnema dvalarleyfi vegna vistráðningar, svokallaðrar au pair, fyrir fólk utan Evrópska efnahagssvæðisins.

Markmiðið er að draga úr hættu á misneytingu þegar einstaklingur er háður einu heimili um húsnæði, framfærslu og dvalarrétt. Miðflokkurinn hefur lagst gegn þessu og vill frekar víkka út au pair fyrirkomulagið þannig að eldri borgarar geti einnig ráðið sér fólk með ekkert nálægt bakland fyrir 60 þúsund krónur á mánuði til að vinna heima hjá sér í 30 klukkutíma á viku.

Ríkari kröfur gerðar til umsækjenda

Samhliða eru gerðar ríkari kröfur til umsækjenda. Almennt búsetuskilyrði fyrir ótímabundnu dvalarleyfi yrði lengt úr fjórum árum í sex. Gerð yrði krafa um að umsækjandi væri ekki í vanskilum við ríki eða sveitarfélög. Samkvæmt kynningunni teldist greiðslusamningur ekki vanskil.

Við fjölskyldusameiningu yrði almennt miðað við að báðir makar hefðu náð 24 ára aldri, með tilteknum undanþágum, og lágmarkssambúð lengd úr einu ári í tvö. Einnig yrðu gerðar kröfur um húsnæði sem rúmaði fjölskylduna. Reglunum er meðal annars ætlað að sporna gegn nauðungar- og málamyndahjúskap.