Andstöðuhjálpin: Ráðherrar eiga að lesa frumvörp sem þeir leggja fram, skilja hvað í þeim felst og það er bannað að plata

Stjórnarandstaðan hefur farið mikinn í grunninn um Landsvirkjun undanfarna daga og vikur. Með dyggri aðstoð hjálparkokka á Morgunblaðinu, Viðskiptablaðinu og hægrihlaðvarpshringekjunni sem tekur í sífellu viðtöl við sjálfa sig hefur hún reynt að skapa tilfinningu um að einhvers konar pólitískur glæpur hafi verið framinn án þess að geta með nokkru móti bent á hver hann er.

Málið snýst um form á fundum og nýja starfshætti stjórnar sem gerðu það að verkum að farsæll forstjóri fyrirtækisins ákvað að segja starfi sínu lausu. Umrædd stjórn var skipuð eftir að það var leitt í lög að valnefndir tilnefni einstaklinga til að sitja í stjórnum fyrir hönd ríkisins í stað þess að þær séu þéttskipaðar flokksgæðingum líkt og tíðkaðist meira og minna allan helmingaskiptatímann hjá Sjálfstæðisflokki og Framsóknarflokki. Það er ekki tekið djúpt í árinni að margir þeirra hafi ekki átt erindi í stjórn hefðbundins húsfélags, hvað þá í stjórn risafyrirtækis í eigu ríkisins.

Eftir að forstjóri lýsti óánægju sinni með nýja fyrirkomulagið var unnið lögfræðiálit sem sýndi að stjórnarhættir stjórnarinnar hefðu verið í samræmi við lög og reglur.

Framsókn og Sjálfstæðisflokkur eiga breytinguna

Málið snerist svo á haus í vikunni þegar Gímaldið birti ítarlega fréttaskýringu um málið þar sem bent var á að það var í raun ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Framsóknar og Vinstri grænna sem kom á því fyrirkomulagi að valnefnd tilnefndi stjórnarmenn í Landsvirkjun.

Og sá sem mælti fyrir frumvarpi þess efnis var Sigurður Ingi Jóhannsson, þá fjármála- og efnahagsráðherra og formaður Framsóknarflokksins, með ræðu sem var flutt 24. október 2024. Í framsögunni og greinargerð sem fylgdi með málinu var skýrt greint frá því að á meðal þeirra stærri ríkisfyrirtækja sem þetta nýja fyrirkomulag átti að ná til væri Landsvirkjun. Sigurður Ingi sagði orðrétt í ræðu sinni að valnefndarfyrirkomulagið hefði reynst vel í bönkum og því væri lagt til að það myndi gilda „ekki aðeins fyrir fjármálafyrirtæki í ríkiseigu heldur einnig fyrir önnur stærri ríkisfyrirtæki.“

Í greinargerð með frumvarpinu sem Sigurður Ingi lagði fram og mælti fyrir sagði einnig: „Sú breyting er gerð á núverandi fyrirkomulagi að valnefnd mun ekki eingöngu hafa hlutverk við tilnefningu í stjórnir fjármálafyrirtækja heldur einnig annarra félaga sem uppfylla nánar tilgreind skilyrði. Markmiðið með þessari breytingu er að tryggja eftir því sem kostur er að samsetning stjórna endurspegli breiða þekkingu og reynslu sem nýtist hverju og einu félagi.“

Á meðal þeirra sem samþykktu þetta frumvarp þegar greidd voru atkvæði um að gera það að lögum voru Guðrún Hafsteinsdóttir, Guðlaugur Þór Þórðarson, Diljá Mist Einarsdóttir, Bryndís Haraldsdóttir og Hildur Sverrisdóttir úr Sjálfstæðisflokki og Sigurður Ingi, Lilja Alfreðsdóttir, Stefán Vagn Stefánsson og Þórarinn Ingi Pétursson úr Framsókn. Þingmenn Samfylkingar og Viðreisnar sátu hjá við afgreiðslu málsins.

Innihald frumvarpsins fór framhjá ráðherranum

Í ljósi alls þessa vakti það verðskuldaða athygli að Sigurður Ingi kannaðist ekkert við eigin króga þegar Gímaldið óskaði eftir viðbrögðum hans við honum. Í umfjöllun miðilsins var haft eftir honum að „þetta er áhugamál einhverra embættismanna í ráðuneytinu og þessu var bara laumað fram hjá […] þetta fór fram hjá mér og fram hjá þinginu.“

Allir hefðu einfaldlega verið í kosningabaráttu og ekki „algjörlega með hugann við þetta“.

Þetta er sami Sigurður Ingi og fór í Spursmál 9. nóvember síðastliðinn og gagnrýndi nýtt stjórnarskipulag Landsvirkjunar þar sem hann sagði að í því hefði „þessi lýðræðislega tenging við Alþingi“ verið tekin burt, að „of einsleitt fólk“ hefði verið sett í stjórn Landsvirkjunar og að „vald fjármálaráðherrans yfir stjórninni yrði einhvern veginn of mikið“.

Nokkrum dögum áður hafði Lilja D. Alfreðsdóttir, formaður og starfsmaður Framsóknarflokksins og ráðherra í sömu ríkisstjórn og Sigurður Ingi, sem leiddi faglega skipan í stjórn Landsvirkjunar í lög, flutt ræðu á miðstjórnarfundi Framsóknar. Þar fór hún mikinn um málefni Landsvirkjunar og beindi því til sitjandi fjármála- og efnahagsráðherra að það væri, með leyfi forseta, „bannað að plata í þessu starfi“.

Stefán Vagn Stefánsson, þingflokksformaður sama Framsóknarflokks, var á svipuðum slóðum í viðtali við Útvarp Sögu í síðustu viku þar sem hann tengdi breytt samskipti milli stjórnar og forstjóra við breytingar á stjórnarskipuninni.

Það er í besta falli kaldhæðnislegt að rifja upp þessar yfirlýsingar í ljósi þess að öll ábyrgð á fyrirkomulaginu á stjórnarvalinu liggur hjá síðustu ríkisstjórn sem þetta sama fólk sat í eða studdi. Það er fyrirliggjandi að þáverandi fjármála- og efnahagsráðherra vissi vel hvað hann var að leiða í lög, enda til myndband af honum í pontu Alþingis að segja það berum orðum. Og það er ekki góður bragur á því né sérstaklega mannalegt að henda embættismönnum fyrir rútuna þegar þú ert gripinn við að segja ekki satt.

Líkt og Lilja sagði þá er nefnilega bannað að plata í þessu starfi.