Hægrið í Reykjavík þykist ætla að þrefalda tekjur af byggingarétti og gatnagerðargjöldum

Meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar lagði á þriðjudag fram sína fyrstu fjárhagsáætlun. Hún kemur í kjölfar þess að ráðist var í tilviljunarkenndar uppsagnir og þjónustuskerðingar til að fóðra pólitískar hægrikreddur án þess að nokkur almennileg þarfagreining lægi þar að baki. Samhliða hefur vart þverfótað fyrir aðgerðum úr ranni meirihlutans sem mun leiða til þess að Reykjavík Hildar Björnsdóttur verður bæði leiðinlegri og óskilvirkari.

Borgarstjórinn Hildur hélt því fram í færslu á samfélagsmiðlum að sá viðsnúningur sem boðaður er í fjárhag borgarinnar, 2,8 milljarða króna afgangur, sé árangur sem muni nást með hagræðingu og ráðdeild í rekstri. Þegar áætlunin er skoðuð kemur þó fljótt í ljós að það eru aðrir bókhaldslegir kraftar að verki.

Minni afskriftir, lægri verðbólga og stórauknar tekjur af sölu byggingaréttar

Til að byrja með er stór hluti afkomubatans vegna afskrifta og fjármagnsliða, eða 4,9 milljarðar króna. Hvorugt hefur nokkuð með hagræðingu eða ráðdeild í rekstri að gera heldur annars vegar vegna þess að borgin getur ekki afskrifað hjúkrunarheimili sem ríkið hefur tekið yfir tvisvar og hins vegar vegna þess að meirihlutinn reiknar með því að ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur takist að lækka verðbólgu umtalsvert á næsta ári.

Svo ætlar hægrimeirihlutinn að þrefalda tekjur af byggingarétti og gatnagerðargjöldum milli ára, fara með tekjur vegna þeirra úr 2,6 í átta milljarða króna, á ísköldum húsnæðismarkaði þar sem hátt í tvö þúsund fullbúnar íbúðir voru óseldar á landinu öllu fyrir ekki svo löngu.

Að síðustu er reiknað með stórauknum arðgreiðslum frá samstæðu Orkuveitu Reykjavíkur, sem meirihlutinn hefur mikinn áhuga á að selja í bútum, sem eiga að skila rúmum tveimur milljörðum króna í viðbótartekjur á næsta ári miðað við árið í ár. Það er aukning upp á 48 prósent.

Bæta 22 milljörðum við skuldirnar á tveimur árum

Samhliða reiknar meirihlutinn, sem ætlaði að tækla skuldastöðu Reykjavíkur strax, með því að hreinar skuldir borgarsjóðs muni hækka skarpt á næstu árum. Þær eru áætlaðar 195 milljarðar króna í árslok en eiga að vera 217 milljarðar króna í lok árs 2029. Ef samstæða Reykjavíkur er skoðuð munu skuldir og skuldbindingar hennar aukast um tæpa 127 milljarða króna til 2031.

Allt er þetta í takti við skammsýni nýfrjálshyggjustjórnmála hægrisins. Tala upp ímyndaðan vanda til að komast að völdum, svelta lykilkerfi svo það þurfi að útvista þeim, selja svo verðmætar eignir til að eiga fyrir rekstrinum og bæta upp í götin sem óhjákvæmilega skapast með því að hækka bara yfirdráttinn.

Niðurskurðurinn bitnar á börnunum

Það er ýmislegt sem sannarlega á að svelta eða fela til viðbótar því sem þegar er búið að eyðileggja í keppnisíþróttauppsögnum nýja meirihlutans. Hefst þá upptalningin:

Samkvæmt fjárhagsáætlun stendur til að lækka fjárheimildir hjá skóla- og frístundasviði um tvo milljarða króna að raunvirði á sama tíma og meirihlutinn klifar ítrekað á því að hann ætli að koma Reykjavík í fremstu röð í menntamálum. Fjárfestingarliður leikskóla á að lækka um tæpan þriðjung og þjónustuþörf barna, sérstaklega fatlaðra barna, er fjarri því að vera kostnaðarmetin. Framtíð sértækra frístundaúrræða eins og Hinsegin félagsmiðstöðvarinnar eða Flotans er óákveðin og fjárveiting til Frístundakorts lækkar í krónum talið og enn meira að raunvirði.

Alls 516 milljón króna hagræðing í menningar- og íþróttamálum er óútfærð og engin fjölgun NPA-samninga er áætluð. Stöðugildum í heimahjúkrun mun fækka þótt notendum hennar muni fjölga. Virkniúrræði sem koma fólki af framfærslu borgarinnar og út í lífið verða aflögð með þeim afleiðingum að mörg hundruð milljóna króna ábati verður ekki lengur staðreynd.

Þekkirðu sorptækni með 2,4 milljónir á mánuði?

Bjóða á út til einkaaðila um 15 prósent sorphirðu við heimili og fækka starfsmönnum um tíu. Annar rekstrarkostnaður sorphirðunnar hækkar um leið um 291 milljón króna, að stærstum hluta vegna útboðsins. Til þess að fækkun starfsmannanna tíu gæti staðið undir þeim kostnaði þyrfti hver og einn þeirra að vera með rúmlega 2,4 milljónir króna í mánaðarlaun.

Leigukostnaður húsnæðis á að hækka um samtals 617 milljónir króna á sama tíma og nýi meirihlutinn, sem ætlaði að gera allt strax, hefur ákveðið að lækka fjárfestingu A-hluta borgarinnar um 5,3 prósent að raunvirði.

Ekki er gert ráð fyrir að helstu skattprósentur lækki. Útsvar, fasteignaskattur íbúðarhúsnæðis og almenna atvinnuhúsnæðishlutfallið helst óbreytt.

Og hvernig rímar þessi sirkus við áform fyrri meirihluta félagshyggju í Reykjavík, sem stýrði borginni fram á síðastliðið vor? Jú, hann sýnir verri afkomu en fyrri spár gerðu ráð fyrir enda gerðu fyrri áform ráð fyrir um 6,9 milljarða króna afgangi á árinu 2027.