Skýr merki um öfl á Íslandi sem vilja ná pólitískum markmiðum með sundrungu

„Ég var að koma frá París þar sem jafnaðarmenn úr Evrópu funduðu saman um uppgang þeirra afla sem vilja ná sínum pólitísku markmiðum með því að ala á sundrungu og kljúfa samfélög, gjarnan með því að ráðast á minnihlutahópa í þessu samfélagi. Við sjáum skýr merki um að það sama sé að gerast hér á Íslandi því að svona tala sumir fulltrúar Miðflokksins og nú virðist Sjálfstæðisflokkurinn vera á hraðri leið út í sama forarskurð.“

Svona hófst ræða Ásu Berglindar Hjálmarsdóttur, þingkonu Samfylkingarinnar, í störfum þingsins í vikunni. Tilefni ræðunnar var færsla á samfélagsmiðlum sem Elliði Vignisson, bæjarstjóri Sjálfstæðisflokksins í Ölfusi, setti nýverið á samfélagsmiðla þar sem hann birti meðal annars nokkurra ára gamla mynd frá Svíþjóð með efni sem fjallaði um mótmæli í Frakklandi í dag. Með myndinni skrifaði hann: „Hér má sjá nemendafélag framhalsskóla í Frakklandi kalla eftir betri aðstöðu í skólanum sínum, ….eða hvað?“

Í kjölfarið átti Elliði í ýmsum samskiptum við ýmsa í ummælakerfi, þar með talið prestinn Bjarna Karlsson. Í þeim samskiptum sagði Elliði meðal annars að „óheftur straumur innflytjenda, sérstaklega múslima, er að valda skaða“.

Ása Berglind benti á í ræðu sinni að slíkur málflutningur væri ekki í lagi. „Í hvern er bæjarstjórinn að vísa eiginlega? Er hann að vísa í borgarstjórann í New York? Er hann að vísa í Jasminu sem hefur búið hér í 30 ár og lagt sitt af mörkum til þessa samfélags eða er hann að vísa í börn sem eru íslamstrúar sem ganga hér í skólann á hverjum degi að læra íslensku við erfiðar aðstæður því að við höfum ekki verið að standa okkur nógu vel í því, líkt og PISA-könnunin sýndi svo glögglega?“

Hún sagði það hlutverk kjörinna fulltrúa og æðstu stjórnenda að byggja upp samfélagið, að búa til blómlegt umhverfi þar sem allir einstaklingar geta fengið að þroskast og dafna en ekki að rífa þá niður og hvað þá heilu hópana. „Við eigum að búa til tækifæri fyrir alla til að blómstra óháð því hvaðan þeir koma, á hvern þau trúa eða hvern þau elska. Við eigum ekki að rífa fólk niður. Það er eðlilegt að gera þá kröfu til okkar að geta rætt um samfélagsleg vandamál án þess að gera heilan trúarhóp tortryggilegan.“

Að lokum minnti hún á að samkvæmt 233. grein almennra hegningarlaga varðar það sektum eða fangelsi allt að tveimur árum að hæðast að, rógbera, smána eða ógna manni eða hópi manna opinberlega með ummælum, myndum, táknum eða annarri tjáningu vegna tiltekinna persónuþátta. „Vöndum okkur,“ sagði Ása Berglind.

Discover more from KRATINN

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading