„Dómur Landsréttar frá 15. október sl. þar sem maður var sýknaður af nauðgun með vísan til samþykkis brotaþola fyrir harkalegu kynlífi hefur vakið óhug og reiði í samfélaginu.“ Svona hófst ræða sem Arna Lára Jónsdóttir, þingkona Samfylkingarinnar, flutti í störfum þingsins í vikunni.
Í málinu sem um ræðir hafði héraðsdómur dæmt manninn í fimm ára fangelsi og taldi sannað að konan hefði meðal annars hlotið rifbeinsbrot, heyrnartap, áverka á höfði, eymsli í kjálka, tognanir á hálsi, öxl, mjóbaki og mjaðmagrind. Hún er enn óvinnufær þremur árum síðar. Maðurinn var sýknaður með vísan til samþykkis.
Arna Lára sagði að samþykki fyrir kynlífi væri ekki samþykki fyrir ofbeldi. „Landsréttur klofnaði en dómarar sem vildu sýkna viðurkenndu í rökstuðningi sínum að tvennt skipti sköpum í þessu máli, annars vegar að þolendur nauðgana geti frosið af hræðslu og hins vegar að ofbeldi í kynlífi þurfi að samþykkja sérstaklega og með skýrum hætti. Yfir 4.000 manns hafa sett nafn sitt á undirskriftalista þar sem krafist er að Alþingi og dómsmálaráðherra beiti sér fyrir óháðri úttekt á meðferð kynferðis- og kynbundinna ofbeldismála, frá rannsókn til dómsmeðferðar.“
Undirskrifendur sætti sig ekki við að ábyrgðin sé færð yfir á þolendur. „Þeir sem beita ofbeldi bera ábyrgð á gjörðum sínum. Þolendur eiga ekki að þurfa að réttlæta hvers vegna þeir sögðu ekki nei oftar eða börðust ekki meira á móti. Ég er þeim hjartanlega sammála.
Krafist sé fagmennsku við rannsókn, saksókn og dómsmeðferð. Úttektin eigi að taka til sönnunarmats, mats á læknisfræðilegum gögnum og frásagna þolenda. Einnig verði skoðað mat á samþykki, mörkum þess, afturköllun og ásetningi.
Arna Lára sagði að við sem samfélag verðum að horfast í augu við þetta samfélagsmein sem hér sé að gerjast. „Ofbeldi gegn konum og börnum fer vaxandi. Hættulegasti staður kvenna er heimili þeirra. Nú er mál að linni.“
