Fjárlagafrumvarpið var kynnt 7. september síðastliðinn. Í því var boðað að krónutöluhækkanir um áramót yrðu almennt 5,2%, í samræmi við verðbólgu. Síðan þá hafa ráðherrar hins vegar sagt, fyrst Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra í viðtali á Sprengisandi á Bylgjunni 13. september, að boðaðar hækkanir gætu orðið minni en lagt er upp með í fjárlagafrumvarpinu ef viðræður á vinnumarkaði gangi vel og aðrir í samfélaginu séu til í að stíga sambærileg skref.
Á síðustu vikum höfum við séð samfélagið sameinast um þessa nálgun. Sveitarfélög landsins hafa ákveðið að halda gjaldskrárhækkunum í 2,5% og eiga mikið hrós skilið fyrir ályktun sína um það á landsþingi sínu um liðna helgi. Stærstu dagvöruverslanir landsins hafa svo ákveðið að frysta eða lækka verð á fjölda vara, sem þeirra framlag í baráttuna gegn verðbólgunni.
Ófjármagnaðir pakkar ekki á borðinu
Það hefur verið alveg ljóst að samstillt átak allra þyrfti til. Ríkisstjórnin hefur enda verið afar skýr með það að innlegg stjórnvalda í viðræður á vinnumarkaðnum muni ekki verða í formi ófjármagnaðra útgjaldapakka, eins og við höfum kannski vanist.
Forsætisráðherra var afdráttarlaus með þetta í þingræðu síðasta vetur: „Ef spurningin er sú hvort við kynnum ófjármagnaða aðgerðapakka í tengslum við kjarasamninga á næstu vikum eða mánuðum þá er svarið nei. Við munum ekki gera líkt og síðasta ríkisstjórn að kynna hér ófjármagnaða aðgerðapakka. Það er hluti af vandamálinu,“ sagði hún þá.
Í viðtalinu á Sprengisandi 13. september sagði Kristrún að það væru ákveðnar viðræður í gangi varðandi krónutöluhækkanirnar. „Við viljum taka sveitarfélögin að borðinu, við viljum taka atvinnurekendur að borðinu að því marki að þau geti gefið út almenn tilmæli. Við viljum líka fá einhverja vissu fyrir því að vera með stöðugleika á vinnumarkaði í haust,“ sagði hún þá.
Vonandi fáum við þá vissu á næstu dögum.
Í ljósi þess hvernig forysta ríkisstjórnarinnar hefur talað síðustu vikur en hins vegar undarlegt, svo ekki sé meira sagt, að stjórnarandstæðingar, sem að uppistöðu eru fulltrúar flokka sem hækkuðu krónutölugjöld um 7,7% í byrjun árs 2023, láti nú eins og sú væntingastjórnun sem falist hefur í nálgun ríkisstjórnarinnar á viðræður á vinnumarkaði hafi verið til óþurftar.
Það er nefnilega öðru nær.
