Dagur B. Eggertsson, þingmaður Samfylkingar er sá þingmaður flokksins og raunar stjórnarliðsins alls sem dvaldi lengst í ræðustóli Alþingis á því löggjafarþingi sem nú er lokið.
Alls hafði Dagur haldið 256 ræður um hádegi á föstudag á 12 klukkustundum og 20 mínútum, samkvæmt ræðutímatopplista Alþingis sem finna má á Kjarrval.is.
Dagur er því réttútnefndur KjaftaKrati 157. löggjafarþings, en hann hefur verið framsögumaður nokkurra umfangsmikilla mála á þinginu síðustu mánuði.
Næst á lista okkar fólks er Arna Lára Jónsdóttir sem hélt 215 ræður á 8 tímum og 48 mínútum og í þriðja sæti er Dagbjört Hákonardóttir sem hélt 175 ræður á 7 tímum og 58 mínútum.
Ræðuhöld okkar fólks blikna þó, eðlilega, í samanburði við stjórnarandstöðuna, en alls var 21 stjórnarandstöðuþingmaður sem varði lengri tíma í ræðustóli en Dagur B.
Fjórir þingmenn stjórnarandstöðunnar töluðu samanlagt í meira en sólarhring, Jón Pétur Zimsen, Sigríður Á. Andersen, Þorgrímur Sigmundsson og Guðlaugur Þór Þórðarson, öll í um eða yfir 500 ræðum.
