Skuldir Ásu Berglindar

Ása Berglind Hjálmarsdóttir þingmaður Samfylkingar í Suðurkjördæmi ræddi um það, í eldhúsdagsumræðum á Alþingi síðasta miðvikudag, hvernig orðið „skuld“ hefði komið ítrekað fram í umræðunni á þessu þingi.

„Við ræðum um hvernig við skuldum þjóðinni fleiri hjúkrunarrými. Við erum að laga það með fordæmalausri uppbyggingu hjúkrunarrýma um allt land,“ sagði Ása Berglind og fór svo yfir að þetta ætti við um fleiri málaflokka, ekki síst samgöngumálin í landinu.

„Hvernig stendur á því að Færeyingar geta bara byggt hver göngin á eftir öðrum? Og hvernig stendur á því að á sama tíma hér á Íslandi verður listinn bara lengri og lengri yfir mikilvægar framkvæmdir sem við þurfum að fara í?“ sagði Ása Berglind í ræðu sinni – og benti síðan á að við vissum svarið.  

„Fyrir nokkrum árum síðan stofnuðu frændur okkar í Færeyjum innviðafélag sem fjármagnar og flýtir stórframkvæmdum og Danir hafa gert það sama með undraverðum árangri. Þeir sem hafa stýrt Íslandi í gegnum tíðina hafa lengi vitað af þessu, en skort hefur pólitískan vilja eða getu til að fylgja því eftir,“ sagði Ása Berglind. En nú eru að renna upp nýir tímar – lög um umgjörð innviðafélags verða sett á Alþingi innan fárra daga.

„Ég veit að þegar fram líða stundir og við horfum til baka þá verður þetta augnablikið þar sem við segjum: Þarna breyttist saga samgangna á Íslandi,“ sagði Ása Berglind.

„Segjum já við upplýsingum“

Ása Berglind kom einnig aðeins inn á Evrópusambandsumræðuna sem farin er af stað sökum þess að þjóðin fær loksins að taka ákvörðun um hvort hefja skuli viðræður um aðild Íslands á ný.

„Öll mín fullorðinsár hefur umræðan um Evrópusambandið hangið yfir og hún hefur, satt að segja, verið frekar leiðinleg. Þó að ég sé búin að vera þingkona í 19 mánuði þá hef ég ekki öll svörin og mér dettur ekki í hug að reyna að sannfæra einn né neinn um það hvort við eigum að ganga inn í Evrópusambandið á þessum tímapunkti.

En mig langar að vera mjög sannfærandi þegar ég biðla til þjóðarinnar að vera opin fyrir því að sjá hvað samningur getur falið í sér. Ég vil að þið fáið tækifæri til að sjá það með eigin augum hverju samningaviðræður geta skilað okkur, í stað þess að fólkinu hér í þessum sal sé látið það eftir að telja ykkur trú um hvað í þessu geti falist.

Segjum já við upplýsingum og segjum já við framtíðar valmöguleikum,“ sagði Ása Berglind.

Discover more from KRATINN

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading