Sveitarstjórnarkosningar fóru fram um allt land um liðna helgi. Eitt helsta markmið Samfylkingarinnar í þeim var að byggja sig upp sem afl á landsvísu, stjórnmálaflokk sem er með virka grasrót út um allt land. Það markmið tókst heldur betur.
Niðurstöður kosninganna voru þó að venju alls konar og hart er tekist á víða um hvernig beri að túlka þær. Þar sér fólk niðurstöðuna mikið út frá því hvar það situr.
Hér að neðan eru helstu niðurstöðurnar að mati Kratans:
1. Fleiri S-framboð: Samfylkingin bauð fram S-lista á 19 stöðum sem var sjö fleiri en árið 2022.
2. Kynslóðaskipti: Á þessum 19 stöðum voru 18 nýir oddvitar. Það eru því gríðarleg kynslóðaskipti að eiga sér stað.
3. Fleiri sveitarstjórnarfulltrúar: Samfylkingin bætir við sig tólf fulltrúum á sveitarstjórnarstiginu frá því sem flokkurinn var með í kosningunum 2022.
4. Næst flestir í sögunni: Samfylkingin er nú með 38 fulltrúa á sveitarstjórnarstiginu og hefur einungis einu sinni haft fleiri slíka fulltrúa. Það var eftir kosningarnar 2010.
5. Næststærst: Þegar hlutfall atkvæða á landsvísu er skoðað kemur í ljós að Samfylkingin er næststærsti flokkurinn, þótt Framsókn hafi fengið aðeins fleiri fulltrúa þar sem kosningakerfið er þeim hliðhollt.
6. Sterk staða ríkisstjórnar á landsvísu: Heilt yfir bættu ríkisstjórnarflokkarnir þrír við sig 15 fulltrúum í kosningunum á meðan minnihlutaflokkarnir á þingi bættu við sig 16.
7. Sterk staða ríkisstjórnarflokka í Reykjavík: Ríkisstjórnarflokkarnir þrír, Samfylking, Viðreisn og Flokkur fólksins, hafa bætt samanlagt við sig fylgi í Reykjavík frá 2022.
8. Varnarsigur í höfuðborginni: Samfylkingin hefur stýrt Reykjavík í 16 ár, og eiginlega meira og minna frá árinu 1994 þegar R-listinn sigraði Sjálfstæðisflokkinn í fyrsta sinn. Þrátt fyrir langa valdasetu hlaut flokkurinn sama fjölda borgarfulltrúa og hann var með fyrir, eða fimm talsins.
9. Sigrar víða um landið: Samfylkingunni gekk mjög vel í Norðurþingi, Skagafirði, Fjarðabyggð og Suðurnesjabæ svo fáeinir staðir séu nefndir. Í Kraganum bætti hún mjög vel við sig og er nú annar stærsti flokkurinn bæði í Garðabæ og Kópavogi. Enn er möguleiki á því að Samfylkingin endi í meirihluta í Hafnarfirði.
10. Hinn raunverulegi tapari: Stóri taparinn í sveitarstjórnarkosningunum var Framsóknarflokkurinn, sem tapaði 15 fulltrúum. Hann var eini flokkurinn sem á fulltrúa á þingi og bauð fram í fleiri en einu sveitarfélagi sem tapaði fulltrúum í kosningunum.
11. Sá sem er ekki lengur til: Píratar, sem voru stofnaðir fyrir 14 árum og hafa átt kjörna fulltrúa á Íslandi síðan 2013, eru nú í baráttu fyrir tilverurétti sínum. Flokkurinn, sem mældist einu sinni með 43 prósent fylgi á landsvísu í könnun, datt út af þingi haustið 2024 og missti alla fulltrúa sína á sveitarstjórnarstiginu í nýliðnum kosningum.
