Svanfríður Guðrún Bergvinsdóttir viðskiptafræðinemi og formaður ASÍ-UNG leiðir lista Samfylkingarinnar í Ísafjarðarbæ, en endanlegur listi flokksins var samþykktur á fundi í upphafi mánaðarins. Helgi Karl Guðmundsson rafmagnstæknifræðingur er í öðru sæti listans og Finney Rakel Árnadóttir aðstoðarskólastjóri í því þriðja.
Þetta er í fyrsta sinn í 24 ár sem Samfylkingin býður fram undir eigin merkjum í Ísafjarðarbæ, en árið 2002 bauð flokkurinn fram og fékk 22,9 prósent atkvæða.
Árið 2006 og þar til nú hefur hins vegar verið boðið fram í samstarfi við aðra flokka undir merkjum Í-listans en ákveðið var að halda því samstarfi ekki áfram til komandi sveitarstjórnarkosninga. Það verður því öflugur S-listi á kjörseðlinum í Ísafjarðabæ 🌹
Framboðið segir sýn sína á verkefnin í Ísafjarðarbæ vera skýra. Það þurfi aukið framboð á húsnæði fyrir alla aldurshópa, öfluga skóla með aukna áherslu á velferð og forvarnir og ný atvinnutækifæri og örugga innviði samhliða öflugri velferðarþjónustu.
Framboðlistann í Ísafjarðarbæ skipa:
1 Svanfríður Guðrún Bergvinsdóttir, viðskiptafræðinemi / Formaður ASÍ-UNG
2 Helgi Karl Guðmundsson, rafmagnstæknifræðingur
3 Finney Rakel Árnadóttir, aðstoðarskólastjóri
4 Sigurður Jón Hreinsson, véliðnfræðingur
5 Hrafnhildur Hrönn Óðinsdóttir, stjórnmálafræðingur
6 Gísli Már Guðjónsson, rafvirki
7 Jónína Eyja Þórðardóttir, umsjónarmaður
8 Úlfar Logason, ljósmyndari/Verkefnastjóri
9 Iwona Maria Samson, sérkennari
10 Sveinberg Þór Birgisson, húsvörður
11 Sigurrós Elddís Huldudóttir, lýðheilsufræðingur
12 Rúnar Helgi Haraldsson, ráðgjafi
13 Ingibjörg Andrea Hallgrímsdóttir, kynjafræðingur
14 Guðmundur Ólafsson, gæðastjóri
15 Þ. Sunnefa Elfarsdóttir, gatahönnuður
16 Kári Jóhannsson, fisksali
17 Inga María Guðmundsdóttir, frumkvöðull
18 Bryndís G Friðgeirsdóttir, fyrrverandi bæjarfulltrúi
