Svavar leiðir S-listann í Suðurnesjabæ

Framboð Samfylkingar og óháðra í Suðurnesjabæ kynnti lista sinn og bauð til samtals við frambjóðendur á Bókasafni Suðurnesjabæjar á sunnudag. Svavar Grétarsson flotastjóri leiðir framboðið og Bergný Jóna Sævarsdóttir stjórnsýslufræðingur og verkefnastjóri er í öðru sæti listans.

Framboðslisti Samfylkingar og óháðra er skipaður fólki úr báðum byggðakjörnum Suðurnesjabæjar, Garði og Sandgerði. S-listinn í Suðurnesjabæ mun leggja mikla áherslu á sameinað samfélag á komandi kjörtímabili og í kosningabaráttunni.

Síðast þegar gengið var til kosninga í Suðurnesjabæ hlaut S-listinn rúm 25% atkvæða og tvo bæjarfulltrúa kjörna.

Á fundinum á sunnudag sagði oddvitinn Svavar frá því að á næstu dögum yrði íbúum og áhugasömum boðið að taka þátt í málefnavinnu með frambjóðendum áður en formleg stefnuskrá verður birt og að búast megi við líflegum og skemmtilegum undirbúningstíma fyrir komandi kosningar.

Listi Samfylkingar og óháðra í Suðurnesjabæ:

1. Svavar Grétarsson, flotastjóri

2. Bergný Jóna Sævarsdóttir, verkefnastjóri og stjórnsýslufræðingur

3. Egill Rúnar Sigurðsson, stjórnmálafræðingur, atvinnurekandi og ökukennari

4. Önundur S. Björnsson, bæjarfulltrúi og fyrrum sóknarprestur

5. Thelma Dís Eggertsdóttir, grunnskólakennari

6. Bára Kristín Þórisdóttir, háskólanemi, er í fæðingarorlofi

7. Agnes Helgadóttir, uppeldis- og menntunarfræðingur

8. Jón Þór Jónsson, formaður Björgunarsveitarinnar Sigurvonar, háskólanemi og

stuðningsfulltrúi

9. Benóný Þórhallsson, smiður

10. Przemyslaw Antoni Szymajda, verkstjóri

11. Magnús Orri Arnarson, kvikmyndagerðarmaður

12. Hildur Guðný Björnsdóttir, nemi

13. Fannar Sigurbjörnsson, slökkviliðsmaður

14. Sigurbjörg Ragnarsdóttir, fyrrum gjaldkeri

15. Jón Snævar Jónsson, húsasmíðameistari

16. Sigursveinn Bjarni Jónsson, sölustjóri og formaður bæjarráðs

17. Elín Frímannsdóttir, löggiltur fasteignasali og fyrrum bæjarfulltrúi

18. Jórunn Alda Guðmundsdóttir, fyrrverandi leikskólastjóri og eldri borgari

,

Discover more from KRATINN

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading