Dauðhneykslaðir stjórnarandstöðuþingmenn vörðu hátt í klukkutíma í ræðustóli Alþingis á mánudag í að býsnast yfir meintri vanvirðingu ríkisstjórnarflokkanna þriggja í garð bænda, þar sem að óskað var eftir heimild til að lengja þingfund inn í kvöldið svo örugglega mætti ljúka fyrstu umræðu um lagareldisfrumvarp atvinnuvegaráðherra.
Þennan sama dag var Búnaðarþing sett og hefð er fyrir því að allir stjórnmálaflokkarnir á þingi bjóði bændum í hóf að kvöldi setningardags. Þótti stjórnarandstæðingum með öllu ótækt að þingfundur gæti mögulega staðið lengur en til kl. 20, þar sem bændum væri jú boðið til veislu um kvöldið í boði stjórnmálaflokkanna.
Varð þetta tilefni til mikillar hneykslunar og orða um að stjórnarflokkunum væri ekkert heilagt, að verið væri að brjóta hefðir sem næðu allt aftur til loka 19. aldar, en reyndar var það svo á þeim tíma og langt inn á 20. öldina að margir forystumenn bænda voru líka kjörnir þingmenn og gátu því erfiðlega verið á tveimur stöðum á sama tíma.
Auðvitað var ekkert tilefni til þessa upphlaups stjórnarandstöðunnar, fyrsta umræðan um lagareldisfrumvarpið var góð og gagnleg og kláraðist kl. 19:45 og gat málið því gengið til atvinnuveganefndar til frekari vinnslu.
Eydís Ásbjörnsdóttir þingmaður Samfylkingar fjallaði um mótttöku þingflokks Samfylkingarinnar fyrir bændur í ræðu sinni í störfum þingsins daginn eftir og sagði þar auk annars: „Við í þingflokki Samfylkingar fengum öflugan hóp til okkar í vel lukkaða móttöku sem stóð fram eftir kvöldi. Það er alltaf gaman að ræða við bændur og heyrði ég margvísleg sjónarmið um byggðaþróun, búvörulög og svo auðvitað mögulegar áframhaldandi viðræður um aðild Íslands að Evrópusambandinu.“
Þingflokkur Samfylkingarinnar þakkar bændum fyrir gott og uppbyggilegt samtal á mánudagskvöld.
