Stjórnarandstaðan eins og maðurinn með tjakkinn

Arna Lára Jónsdóttir þingmaður Samfylkingar gerði fyrri umræðu um þingsályktunatillögu um þjóðaratvæðagreiðslu um áframhaldandi viðræður við Evrópusambandið að umtalsefni sínu í störfum þingsins á þriðjudaginn. Líkti hún stjórnarandstöðunni við manninn með tjakkinn úr þeirri þekktu sögu, í nálgun sinni á málið.

„Umræðan átti ágæta upplýsandi spretti en á löngum köflum snerist hún ekki um þjóðaratkvæðagreiðsluna heldur eitthvað allt annað. Hér hefur verið haldið fram að engar undanþágur sé að fá, það sé ekkert um að semja og að tímasetning þjóðaratkvæðagreiðslunnar sé kolómöguleg,“ sagði Arna Lára í ræðu sinni og bætti því við að stjórnarandstaðan hefði „spólað yfir sig“.

„Mér verður hugsað til sögunnar af manninum með tjakkinn. Sú saga fjallar um bílstjóra sem verður fyrir því óláni að dekk á bíl hans springur um miðja nótt. Bílstjórinn uppgötvar að enginn tjakkur er í bílnum en langt í burtu sér hann ljós á bóndabæ. Hann ákveður að ganga af stað og freista þess að fá lánaðan tjakk. Á leiðinni fer hann að velta fyrir sér hvort bóndinn á bænum eigi nothæfan tjakk og, ef svo ólíklega vill til, hvort hann vilji lána honum hann. Það er slagviðri, maðurinn illa búinn og smám saman tekst honum að sannfæra sjálfan sig um að bóndinn sé bölvaður nirfill og muni næsta örugglega taka illa á móti sér. Þegar bílstjórinn kemur loksins á bóndabæinn, blautur og kaldur, er hann orðinn svo æstur yfir eigin hugsunum að hann bankar í fússi á útidyrnar og hreytir framan í grandalausan manninn sem opnar: „Þú mátt eiga þinn helvítis tjakk sjálfur.“ Svo þrammar hann til baka niður heimreiðina án þess að frekari samskipti eigi sér stað.

Virðulegur forseti. Er ekki farsælla fyrir þjóðina að sjá hvaða tækifæri aðildarsamningur getur haft í för með sér áður en við hendum helvítis tjakknum í þjóðina?“ sagði Arna Lára.

Þórdís Kolbrún: Margt sem við vitum ekki

Auðvelt er að taka undir með Örnu Láru um meginþorra þeirra fjölmörgu ræðna og andsvara sem stjórnarandstaðan hélt í þessari fyrri umræðu. Inn á milli voru hins vegar undantekningar, eins og ræða Þórdísar Kolbrúnar R. Gylfadóttur þingmanns Sjálfstæðisflokks á mánudagskvöld.

Í þeirri ræðu sagði hún meðal annars að það þyrfti að viðurkenna að það væru bæði hlutir sem við vissum, og vissum ekki, varðandi það hvað aðild að Evrópusambandinu fæli sér.

„Þetta ferli er pólitík. Evrópusambandið er pólitík. Allt sem þar gerist er ekki varanlegra en það að það er pólitík. Við getum þá sem stjórnmálamenn sem eigum að skilja pólitík, ekki einhvern veginn látið eins og þetta sé ekki pólitík þannig að við þurfum líka að vera alveg heiðarleg með það hvað við vitum ekki,“ sagði Þórdís Kolbrún.

,

Discover more from KRATINN

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading