Samfylkingin og óflokksbundnir (X-S) bjóða fram í Hveragerði til sveitarstjórnarkosninganna í vor og var framboðslistinn kynntur á opnum kynningarfundi í húsi leikfélagsins í bænum síðasta laugardag. Birgitta Ragnarsdóttir tollamiðlari og Þorsteinn Hjartarson eldri borgari og fv. fræðslustjóri eru í efstu tveimur sætum listans.
Samfylkingarfélagið í Hveragerði hefur tekið þátt í framboðinu Okkar Hveragerði undanfarin tvö kjörtímabil, en býður nú kjósendum upp á nýjan valkost. Síðast þegar Samfylkingin bauð fram í Hveragerði árið 2014 fékk framboðið 27,83% atkvæða og tvo menn kjörna í bæjarstjórn.
S-listinn er skipaður öflugu fólki með fjölbreytta reynslu og þekkingu sem vill leggja sitt af mörkum til þróunar og áframhaldandi uppbyggingar Hveragerðisbæjar. Í starfinu framundan hjá S-listanum verður lögð áhersla á að fólk með ólíkar skoðanir og ólíkan bakgrunn geti fundið sér farveg og staðið saman með félagshyggju og jafnaðarstefnu að leiðarljósi.
S-listinn í Hveragerði er þannig skipaður:
- Birgitta Ragnarsdóttir, tollamiðlari
- Þorsteinn Hjartarson, eldri borgari og fv. fræðslustjóri
- Maria Araceli, dans- og leiklistarkennari
- Guðmundur Benóný Baldvinsson, lagerstjóri
- Berglind Ósk Guttormsdóttir, leiðsögumaður og ferðaskipuleggjandi
- Arnar H. Halldórsson, verkfræðingur
- Árný Fjóla Ásmundsdóttir, leiðbeinandi í leikskóla og listakona
- Tómas Kristjánsson, sálfræðingur og lektor
- Kristín Lilja Thorlacius, bókasafns- og upplýsingafræðingur
- Halldór Grétar Einarsson, tæknistjóri
- Harpa Björnsdóttir, deildarstjóri og leikskólakennari
- Hjálmar Trausti Kristjánsson, bílstjóri
- María Arnardóttir, myndlistarkona
- Ingibjörg Sigmundsdóttir, eldri borgari og fv. garðyrkjubóndi
