Dagur B. Eggertsson skrifar:
Í gærkvöldi lauk fyrri umræðu um þingsályktun utanríkisráðherra um þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort halda eigi áfram viðræðum um aðild að Evrópusambandinu (ESB). Umræðurnar endurspegluðu að það er erfitt að færa málefnaleg rök gegn því að halda þjóðaratkvæðagreiðslu um málið. Stjórnarandstaðan skautaði létt yfir þá staðreynd að nánast allir flokkar á Alþingi hafi lofað því í kosningum að þjóðin ætti að ráða úrslitum um næstu skref varðandi aðildarumsóknina.
Þrátt fyrir þessa forsögu braust fram í umræðunni ólund út í þá hugmynd að almenningur komi að málum. Þetta er hin gamla og þreytandi varðstaða um fákeppni, samkeppnisforskot og gróða þeirra sem hagnast af háum vöxtum. Já, það var dálítil veiðigjaldalykt af umræðunni. Miðflokkurinn var um tíma orðinn svo innlifaður í ESB-hatrið að hann er farinn að tala gegn lægri vöxtum, einu helsta hagsmunamáli almennings og fyrirtækja. Þetta finnst mér afhjúpandi.
Tónninn minnti óneitanlega á hversu illa var spáð fyrir EES-samningnum, sem allir styðja nú og vilja eiga. Það var talað um fullveldisframsal, landsölu og þannig mætti áfram telja. Þvert á hrakspár hafði EES í för með sér mikið hagvaxtarskeið, aukin samræming við Evrópureglur (sem stundum er töluð niður) var frábær fyrir íslensk fyrirtæki, samkeppni og samkeppnishæfni atvinnulífsins. Stjórnendur stórra og smárra nýsköpunarfyrirtækja hafa vitnað um að EES var forsenda þess að fyrirtækin gætu vaxið og dafnað á Íslandi. Menntun, rannsóknir og menning hafa einnig notið mjög góðs af Evrópusamvinnu.
Hár fjármagnskostnaður vegna vaxta og verðbólgu á Íslandi er landsins forni fjandi. Það er eitt stærsta hagsmunamál fyrirtækja og heimila að ná fram evruvöxtum. Við fengjum þessi betri kjör í kjölfar aðildar og með upptöku evru. Til þess þurfum við að uppfylla ýmis skilyrði. Þar eigum við skammt í land. Við gætum því fengið evru og evruvexti hraðar en flestir gera sér grein fyrir. Það er mikilvægt eitt og sér. Krónan er einnig þröskuldur sem vinnur gegn samkeppni á banka-, trygginga- og fjármálamarkaði, svo dæmi séu nefnd. Það mun leysa úr læðingi mikinn kraft að íslenskt hagkerfi geti fjármagnað sig og endurfjármagnað sig á evrópskum kjörum.
Það umrót sem er í alþjóðakerfinu og samstarfi þjóða gerir Evrópumálin brýnni en áður. Hvernig gætum við best hagsmuna Íslands, nú og til framtíðar? Hvaða ríki deila gildum okkar og hugsjónum? Eru það ekki Norðurlöndin og Evrópa? Tollabandalag ESB er einnig það skjól sem við þurfum á tímum refsitolla og alþjóðlegs tollastríðs. Ekki vegna þess að það sé víst að við lendum ítrekað í erfiðri stöðu heldur vegna þess að sú staða getur hæglega komið upp.
Þjóðaratkvæðagreiðslan er því mikilvægt og jákvætt mál. Og ég ætla að segja já.
Greinin birtist fyrst í Morgunblaðinu 17. mars.
