Miðflokkur í MAGA-kleinu

Vandræðagangur Miðflokksins, og sér í lagi formanns hans, við að svara eðlilegum spurningum um samband við bandarískar hugveitur sem tengjast MAGA-hreyfingunni vestanhafs hefur vakið athygli síðustu daga.

Heimildin sagði auk annars frá því í síðasta tölublaði sínu að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður flokksins hefði fundað með áhrifamönnum innan bandaríska Repúblikanaflokksins í Stokkhólmi 22. ágúst í fyrra. Ljóst er af skjölum frá bandaríska þinginu að hugveitan Turning Point Action, bauð ameríska hópnum og greiddi fyrir flug, gistingu og málsverði.

Óljóst er hvort þessi sama hugveita eða einhver annar aðili greiddi einhvern kostnað fyrir Sigmund Davíð, eða þá hvort hann eða Miðflokkurinn greiddi sjálfur fyrir ferðina. Forsætisráðherrann fyrrverandi hefur ekki fengist til að svara einföldum spurningum um málið og þess í stað reynt að tortryggja umfjöllun Heimildarinnar sem mest hann getur.

Í ræðustóli Alþingis hneyklaðist hann á því að hafa séð prentútgáfu Heimildarinnar á kaffistofu þingsins og var greinilega nokkuð brugðið eftir að Dagur B. Eggertsson þingmaður Samfylkingar benti á að rétt væri að Miðflokkurinn gerði hreint fyrir sínum dyrum hvað þessi mál varðaði.

Hannes Hólmsteinn Gissurarson fyrrverandi prófessor sagði í samtali við Heimildina að hugveitur á borð við New Direction, greiði iðulega ferðakostnað þátttakenda sem taka þátt í ráðstefnum þeirra erlendis. Sigmundur Davíð hefur ekki fengist til að svara spurningum um hvort erlendar hugveitur með tengsl við bandarísku MAGA-hreyfinguna greiði fyrir hann kostnað eða uppihald.

Á meðal spurninga sem Sigmundur hefur ekki svarað eru þessar:

  • Greiddu Nordic Sidebar, New Direction, Turning Point Action eða önnur erlend samtök ferðakostnað þinn og/eða uppihald að einhverju eða öllu leyti?
  • Hafa New Direction eða önnur erlend samtök greitt fyrir ferðir þínar á Young Leaders Academy í júní 2023, Nostos ráðstefnurnar 2022 og 2023, Atreju og ARC ráðstefnurnar í fyrra eða einhverjar aðrar ráðstefnur sem þeim tengjast?
  • Ef svo er, hyggstu uppfæra hagsmunaskráningu þína á vef Alþingis til að sýna þær gjafir opinberlega?
Ljósmyndari fylgdi þingflokknum fyrir 1.000 dali á dag

Greinilegt var á miðvikudag að einhverjir fjölmiðlar voru að spyrja frekari spurninga um þessi mál, því allt í einu steig Sigríður Á. Andersen þingmaður Miðflokksins fram með myndasyrpu og nokkuð ítarlega frásögn af ferð Miðflokksins til Washington D.C. síðasta haust.

Færsla þingmannsins varð skiljanlegri daginn eftir. Frétt sem birtist á vef Heimildarinnar á fimmtudagsmorgun sýnir að Miðflokkurinn greiddi manni að nafni Zachary Freeman, sem einnig hefur verið ráðgjafi fyrir breska fjarhægrimanninn Nigel Farage, að minnsta kosti 9.600 Bandaríkjadali fyrir að skipuleggja fundi og sjá um að taka myndir á fundum flokksins í þriggja daga ferð. Ljósmyndunarþjónustan ein og sér kostaði 1.000 dali á dag, samkvæmt samningnum sem Heimildin birti.

Sjálfstæðisflokkurinn hefur raunar einnig nýtt sér þjónustu sama manns til að komast í samband við bandaríska íhaldsmenn og gerðu það þegar formaður og varaformaður flokksins fóru í ferð til Bandaríkjanna í fyrra.

Sigríður Andersen sagði annars frá því í færslu sinni að Miðflokksmenn hefðu í ferð sinni fundað með Heritage Foundation, fjarhægri-hugveitu sem verið hefur áhrifamikil í uppgangi MAGA-hreyfingarinnar vestanhafs.

Stefnuskrá þeirra frá 2023, Project 2025, felur í sér tillögur um takmörkun réttinda kvenna og hinsegin fólks, aukna pólitíska stýringu stjórnkerfisins, ofsóknir gegn innflytjendum og stóraukin völd forseta Bandaríkjanna. Morgunljóst er að Bandaríkjaforseti hefur sótt stíft í þessa leikbók á fyrri hluta nýs kjörtímabils hans.

Samhengi hlutanna er umhugsunarvert, enda er ómögulegt að lesa nýlegt stefnuplagg Bandaríkjastjórnar á annan hátt en hún vilji sérstaklega styðja við fjarhægri-þjóðernisflokka í Evrópu, til að sundra samstöðu innan ríkja og innan Evrópu og þar með veikja Evrópusambandið (enda er Evrópa mun meðfærilegri fyrir stórveldi heimsins ef hún er ósamstíga og innbyrðis klofin).

Það er því óheppilegt að stjórnmálaleiðtogi, sem segist í orði kveðnu standa vörð um íslenska hagsmuni öðru fremur, geti ekki svarað eðlilegum spurningum um fjárhagstengsl við áhrifamiklar hugveitur bandaríska fjarhægrisins.

Discover more from KRATINN

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading