110 ára barátta fyrir jöfnuði og frelsi

Jóhann Páll Jóhannsson skrifar:

Í dag eru 110 ár frá stofnun Alþýðusambands Íslands og Alþýðuflokksins. Stofnendur voru sjö félög í Reykjavík og Hafnarfirði, þar af eitt félag verkakvenna.

Við skulum rifja upp við hvernig aðstæður alþýðufólk bjó árið 1916. Fátækralögin svonefndu voru í gildi og fólki bókstaflega refsað fyrir að vera fátækt. Sá sem þurfti fjárstuðning frá hinu opinbera missti nær öll borgaraleg réttindi og gat átt von á því að vera fluttur nauðugur milli landshluta. Fjölskyldum var sundrað og lögregla látin vakta hús og elta uppi þau sem flytja átti nauðungarflutningum.

Allir sem þegið höfðu fjárhagsaðstoð frá sveitarfélögum voru útilokaðir frá því að kjósa í bæjarstjórnarkosningum. Aðeins karlar 25 ára og eldri og konur 40 ára og eldri gátu kosið. Verkafólk þurfti að strita myrkranna á milli til að geta framfleytt sér. Félagsleg undirboð voru ekki undantekning heldur regla. Engar alvörutryggingar voru til staðar gegn fátækt af völdum veikinda, aldurs, örorku eða atvinnuleysis, svo fólk lifði í eilífum ótta um afkomu sína.

Það kom í hlut verkalýðshreyfingarinnar og jafnaðarmanna að berja fram nýja og betri samfélagsgerð í þágu fjöldans. Og þegar vinnandi fólk kom saman og skipulagði sig, bæði á Íslandi og í löndunum í kringum okkur, vannst hver sigurinn á fætur öðrum. Verkamannabústaðir voru reistir og rétturinn til hvíldar og frítíma tryggður, almanna- og atvinnuleysistryggingum var komið á fót, fæðingarorlof og leikskólar komu til sögunnar og svona mætti áfram telja.

Ríkisvaldið tók smám saman stakkaskiptum og varð að verkfæri til þess að umbreyta lífi venjulegs fólks til hins betra. Og eftir því sem leið á 20. öldina var mýtan um að aukinn jöfnuður dragi óhjákvæmilega kraftinn úr hagkerfinu og geri alla fátækari afsönnuð mjög rækilega, ekki síst í þeim samfélögum Vestur-Evrópu þar sem viðurkennt var með afgerandi hætti að verðmætasköpun er samvinnuverkefni launafólks, atvinnurekenda og hins opinbera.

Baráttunni sem formgerðist með stofnun Alþýðusambandsins og Alþýðuflokksins er hvergi nærri lokið. Þetta er kjarabarátta en líka barátta fyrir frelsi og lýðræði. Víðast hvar var almennur kosningaréttur afsprengi harkalegrar verkalýðsbaráttu og sögulega hefur það verið verkefni jafnaðarmanna og verkalýðshreyfinga í Evrópu að útvíkka og verja almenn lýðréttindi.

Flest af þeim félagslegu réttindamálum og framfaraskrefum sem kunna að virðast hversdagsleg lífsgæði í dag voru hápólitísk og kostuðu harðvítug átök við ráðandi stéttir. Það mun líka kosta átök að viðhalda þessum réttindum og styrkja þau enn frekar. Þar verður samtakamátturinn sem fyrr sterkasta vopnið. Til hamingju með daginn ASÍ, Samfylking og allt launafólk á Íslandi.

Höfundur er umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra og þingmaður Samfylkingarinnar, jafnaðarflokks Íslands. Greinin birtist fyrst í Morgunblaðinu 12. mars 2026.

Discover more from KRATINN

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading