Öflugur hópur jafnaðarfólks skipar lista Samfylkingarinnar í Mosfellsbæ, sem var samþykktur á félagsfundi síðdegis á mánudag. Ólafur Ingi Óskarsson netkerfissérfræðingur leiðir listann og í öðru sæti er Guðný Maja Riba kennari, sem verið hefur borgarfulltrúi Samfylkingarinnar í Reykjavík á þessu kjörtímabili.
Samfylkingin fékk einn kjörinn bæjarfulltrúa í Mosfellsbæ árið 2022, hana Önnu Sigríði Guðnadóttur, sem situr í heiðurssæti listans í ár. Flokkurinn hefur myndað meirihluta með Framsókn og Viðreisn á þessu kjörtímabili.
Ólafur Ingi, sem verið hefur varabæjarfulltrúi og formaður velferðarnefndar á kjörtímabilinu, tekur nú við keflinu. „Það er mér mikill heiður að vera fyrirliði í svo flottu liði. En það er líka eins gott að Samfylkingin mæti sterk til leiks því það er mikið undir,“ segir hann.
Framboðslisti Samfylkingarinnar í Mosfellsbæ í heild sinni:
- Ólafur Ingi Óskarsson, netkerfisfræðingur og formaður velferðanefndar
- Guðný Maja Riba, kennari og fráfarandi borgarfulltrúi
- Ómar Ingþórsson, landslagsarkitekt og náttúrufræðingur
- Auður Einarsdóttir, laganemi
- Guðlaugur Bjarki Lúðvíksson, verkfræðingur
- Elín Eiríksdóttir, sérkennari í FMOS
- Sigurður Óli Karlsson, stjórnmálafræðinemi
- Viktoría Magnúsdóttir, háskólanemi
- Þórarinn Snorri Sigurgeirsson, skrifstofustjóri Þroskahjálpar
- Þóra Sigrún Kjartansdóttir, hársnyrtir
- Magnús Hlynur Haraldsson, framhaldsskólakennari
- Kristín María Ingimarsdóttir, kennari og hönnuður
- Kári Freyr Kane, stjórnmálafræðinemi
- Halla Halldórsdóttir, öryggis- og gæðastjóri Sjúkratrygginga
- Þyrnir Hálfdán Þyrnisson, nemi
- Þóra Hermannsdóttir Passauer, tækniteiknari
- Guðbjörn Sigvaldason, verslunarmaður
- Þórunn Ísfeld, eftirlaunakona
- Ragnar Gunnar Þórhallsson, baráttumaður fyrir réttindum fatlaðs fólks
- Kristín Sæunnar Sigurðardóttir, eftirlaunakona
- Jónas Sigurðsson, fyrrverandi bæjarfulltrúi og fyrrverandi formaður FAMOS
- Anna Sigríður Guðnadóttir, bæjarfulltrúi
