Logi Már Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra og oddviti Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi, og Eydís Ásbjörnsdóttir, þingmaður okkar í kjördæminu, ferðuðust víða um það í síðustu viku. Á mánudag héldu þau norður á Akureyri ásamt Ölmu Möller heilbrigðisráðherra og funduðu í Háskólanum á Akureyri með stjórnendum og stúdentaráði. Að því loknu heimsóttu þau Drift EA miðstöð frumkvöðla og nýsköpunar og héldu svo á fund sérsveitar Ríkislögreglustjóra á Akureyri þar sem þau áttu gott samtal um aðstöðu og starfsemi hennar. Dagskráin endaði með opnum fundi í Sunnuhlíð á Akureyri þar sem þau áttu gott samtal við Akureyringa um hin ýmsu málefni.
Á þriðjudag héldu Logi og Eydís austur og funduðu með stjórnendum Menntaskólans á Egilsstöðum og Vegagerðinni á Reyðarfirði áður en þau héldu á Seyðisfjörð þar sem þau hittu sveitastjórnarfólk í Múlaþingi og héldu svo opinn fund með íbúum í sveitarfélaginu. Á fundinum, sem var sérstaklega vel sóttur, var aðallega rætt um samgöngumál svæðisins sem hafa verið mikið í umræðunni. Fundurinn var vel sóttur, gekk vel, var afar mikilvægur og gott var að heyra sjónarmið íbúa um fyrirhugaðar samgönguframkvæmdir.
Á miðvikudag skoðuðu þau nýuppgert Lúðvíkshús í Neskaupstað þar sem nýtt skjala- og myndasafn er til húsa. Þá fengu þau kynningu á starfsemi Menningarstofu Fjarðabyggðar. Að því loknu funduðu þau með skólastjóra Verkmenntaskóla Austurlands áður en þau héldu í Múlann – samvinnuhús að skoða glæsilega nýbyggingu og fá kynningu á ýmissi starfsemi sem þar er til húsa. Deginum lauk með opnum fundi á heimaslóðum Eydísar í Eskifjarðarskóla þar sem fundargestir báru upp fjölbreyttar spurningar til okkar fólks, meðal annars um virkjanakosti, samgönguáætlun, veiðikerfi og fleira. Fundurinn var afar gagnlegur og mikilvæg brýning fyrir þingmenn kjördæmisins.
