Samfylkingin verður á ferðinni í kjördæmaviku

Í þessari viku er kjördæmavika á Alþingi. Þá er gert hlé á hefðbundnum þingfundum og nefndarstörfum og þingmenn halda út í kjördæmin til að hitta fólk, fyrirtæki og stofnanir, kynna sér aðstæður og hlusta á það sem brennur á fólki.

Samfylkingin hefur lagt mikla áherslu á opið milliliðalaust samtal og því eru þessar vikur í miklu uppáhaldi hjá þingmönnum.

Í vikunni verður sérstök áhersla á að heimsækja Snæfellsnesið og Vestfirðina, en þar mun stór hluti þingflokksins sameinast í síðari hluta vikunnar. Þó verður einnig dagskrá í öðrum kjördæmum, bæði á höfuðborgarsvæðinu og víðar um landið.

Við ætlum að heimsækja skóla og heilbrigðisstofnanir, funda með sveitarstjórnarfólki, heimsækja fyrirtæki og bjóða til fjölda opinna funda.

Eftirfarandi opnir fundir verða á dagskrá:

Alma Möller um heilbrigðismál í Reykjanesbæ – mánudaginn 23. feb. kl. 17:00

Alma Möller um heilbrigðismál í Kópavogi – mánudaginn 23. feb. kl. 20:00

Logi Einarsson á Akureyri – mánudaginn 23. feb. kl. 17:00

Logi Einarsson og Eydís Ásbjörnsdóttir á Seyðisfirði – þriðjudaginn 24. feb. kl. 17:00

Logi Einarsson og Eydís Ásbjörnsdóttir á Eskifirði – miðvikudaginn 25. feb kl. 17:00

Opið samtal á Þingeyri – fimmtudaginn 26. feb. kl. 12:00

Opið samtal með þingflokknum á Ísafirði – fimmtudaginn 26. febrúar kl. 19.30

Opið samtal í Bolungarvík – föstudaginn 27. febrúar kl. 12:00

Frekari upplýsingar um einstaka fundi má finna á  Facebook-síðu  Samfylkingarinnar. Við hlökkum til að hitta ykkur í vikunni!

Discover more from KRATINN

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading