„Við látum verkin tala“: Stórframkvæmdir af stað við HSU

Vinna við gagngerar endurbætur og stækkun húsnæðis fyrir sjúkrahússþjónustu og heilsugæslu við Heilbrigðisstofnun Suðurlands (HSU) á Selfossi er að hefjast. Áformað er að fyrsta áfanga af þremur, sem felur í sér endurnýjun og stækkun húsnæðis heilsugæslu, geðteymis og heimahjúkrunar, verði lokið árið 2027.

Verkinu í heild, sem felur m.a. í sér byggingu rúmlega 5.200 fermetra nýbyggingar fyrir legudeildir, bráðamótttöku, myndgreiningu, fæðingarþjónustu og mæðravernd á svo að geta verið lokið árið 2034. Um er að ræða byltingu fyrir þá mikilvægu starfsemi sem fram fer í þessum lykilkjarna HSU.

„Sú áætlun sem hér liggur fyrir um stækkun, endurbætur og endurskipulag húsnæðis HSU boðar nýja tíma í starfsemi stofnunarinnar og gerir henni kleift að þróast og dafna. Húsnæðið er vissulega ekki allt, en það getur haft mikil áhrif á öryggi og gæði þjónustunnar með góðum aðbúnaði sjúklinga og vandaðri og vel skipulagðri vinnuaðstöðu starfsfólks. Það sýnir sig líka að góðar vinnuaðstæður auka starfsánægju sem styður við mönnun starfseminnar,“ er haft eftir Ölmu D. Möller heilbrigðisráðherra í umfjöllun um framkvæmdirnar á vef stjórnarráðsins.

Alma fór einmitt í lok febrúar í fyrra ásamt fleiri fulltrúum þingflokks Samfylkingarinnar og heimsótti HSU á Selfossi og fékk þar að sjá þann aðbúnað sem heilbrigðisstarfsmenn og notendur heilbrigðisþjónustu á Suðurlandi hafa þurft að gera sér að góðu.

Innviðaskuldin í aðstöðunni á Selfossi er því miður orðin töluverð. En nú er búið að ganga frá lausum endum, finna nauðsynlegt fjármagn og fá heimild Samstarfsnefndar um opinberar framkvæmdir fyrir því að setja verkið af stað.

„Stórkostlegar fréttir fyrir Suðurland!“

Þingmenn Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi hafa glaðst yfir fréttunum, sem von er. „Eitt er að halda margar ræður og vera með fjölda af færslum á samfélagsmiðlum. Við látum verkin tala,“ sagði Víðir Reynisson um málið í færslu á Facebook.

„Stórkostlegar fréttir fyrir Suðurland!“ sagði Ása Berglind Hjálmarsdóttir á sama miðli, enda ljóst að um brýna og löngu tímabæra framkvæmd er að ræða. Eldri hluti húsnæðis HSU á Selfossi, um 3.800 fermetrar, er frá árinu 1981. Nýrri hluti þess, um 5.000 fermetrar, var tekinn í notkun árið 2008.

Uppsöfnuð viðhalds- og endurnýjunarþörf hefur verið til staðar hjá stofnuninni og húsnæðið uppfyllir ekki nútímakröfur um öryggi og gæði þjónustu. Vinnuaðstaða starfsfólks er víða þröng og hluti skrifstofustarfs fer fram í gámaeiningum á lóð HSU.

Áætlaður heildarkostnaður allra þriggja áfanganna nemur á bilinu 8,5 til 13 milljörðum króna eins og áætlanir líta út í dag. Þetta er því sannarlega stórframkvæmd í þágu heilbrigðisþjónustu á Suðurlandi.

Discover more from KRATINN

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading