Ása Berglind: Ætlar Sjálfstæðisflokkurinn að hætta að standa með kynjajafnrétti?

Ása Berglind Hjálmarsdóttir þingkona Samfylkingar gerði jafnréttismál að umtalsefni sínu undir liðnum störf þingsins á þriðjudag, eftir að hafa horft upp gallsúra umræðu og atkvæðagreiðslu um framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum á mánudag. Atkvæðagreiðslan stóð yfir í um tvær klukkustundir eftir að Miðflokkurinn fór fram á að greidd yrðu atkvæði um hverja og eina aðgerð í framkvæmdaáætluninni sérstaklega. Þingmenn Miðflokks og Sjálfstæðisflokks voru á gulu og rauðu tökkunum í flestum atkvæðagreiðslum um áætlunina. Hér að neðan er ræða Ásu:

Virðulegi forseti. Mér finnst ástæða til að tala um jafnréttismál eftir gallsúra umræðu í þingsal í gær þegar atkvæðagreiðsla um framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum fyrir næstu fjögur ár fór fram, framkvæmdaáætlun sem hefur verið lögð fram á fjögurra ára fresti frá því um 1980, í 46 ár.

Við erum komin á þennan góða stað í jafnréttismálum vegna markvissra aðgerða stjórnvalda sem hafa fengið aðhald, hvatningu og hugmyndir m.a. frá kvennahreyfingunni. Gæfa og árangur okkar byggir á samstöðu. Allir flokkar hafa verið sammála um jafnrétti kynja. Hér í gær var talað eins og sá árangur sem Ísland hefur náð í jafnréttismálum hafi dottið af himnum ofan en ekki með þrotlausri vinnu og aðgerðum í áratugi. Fólk sem talar um að aðgerðir séu orðasalat og vitleysa gerir lítið úr þeim árangri. Að tala niður rannsóknir og mælingar er hættulegt því að á þeim byggir stefnumótunin. Hvar er virðingin fyrir þeim sem ruddu brautina með ósérhlífinni baráttu og gríðarlegri vinnu? Halda hv. þingmenn að það sé tilviljun ein að Ísland sé búið að vera efst á lista Alþjóðaefnahagsráðsins yfir jafnrétti kynjanna 16 ár í röð?

Frú forseti. Í 16 ár hefur Ísland nú borið höfuð og herðar yfir önnur ríki í þessum málum. Jafnrétti er ekki bara siðferðilegt markmið heldur lykilforsenda fyrir sterku hagkerfi og betri samfélögum. Fyrstu jafnréttislögin voru sett á Íslandi árið 1976, fyrir 50 árum. Við vorum fyrst allra Norðurlanda til að setja sérstök jafnréttislög og höfum verið fyrirmynd ótal annarra landa. Í því samhengi er það sérstaklega dapurlegt að verða vitni að þessari hnignun sem er að eiga sér stað hér á meðal þingmanna Miðflokksins með stuðningi þingmanna Sjálfstæðisflokksins ýmist úr ræðustóli eða þögulli hjásetu og gulum takka í atkvæðagreiðslu.

Ég kalla eftir viðbrögðum frá formanni Sjálfstæðisflokksins, frú forseti. Verður það á vakt hv. þingmanns og formanns Sjálfstæðisflokksins, Guðrúnar Hafsteinsdóttur, sem Sjálfstæðisflokkurinn hættir að standa með kynjajafnrétti og rýfur þennan samfélagssáttmála til áratuga?

,

Discover more from KRATINN

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading