Hvatti Ingu til að skoða Andrésblaðagjafir

„Það er ekkert fallegra en barn sem les,“ sagði Dagbjört Hákonardóttir þingmaður Samfylkingarinnar í umræðu sem fram fór á Alþingi í dag um stöðu grunnskóla landsins. Þar sagði hún nauðsynlegt að foreldrar læsu fyrir framan börnin sín og hvatti einnig Ingu Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, til þess skoða óhefðbundnar leiðir til að efla aðgengi barna að lesefni.

Nánar tiltekið nefndi Dagbjört að ráðherrann gæti horft til verkefnis í Helsinki, höfuðborg Finnlands, þar sem þúsundum nemenda í þriðja bekk býðst nú að fá þriggja mánaða áskrift að Andrési Önd, þeim að kostnaðarlausu. Um er að ræða rannsóknaverkefni sem snýst um að kanna hvort aðgengi að lesefni heima fyrir auki lestur barna og þar með læsi, sem fer hnignandi í Finnlandi rétt eins og hér heima.

„Ég er áskrifandi að þessu fyrir börnin mín. Ég er að drukkna í þessu, en þetta lesa börnin og það er ekkert fallegra en barn sem les,“ sagði Dagbjört og bætti við, í niðurlagi ræðu sinnar: „Það þarf ekki að vera Halldór Laxness, það getur verið hvað sem er og við þurfum líka að lesa fyrir framan börnin okkar.“

Í ræðu sinni rifjaði Dagbjört einnig upp að þegar hún var í allsherjar- og menntamálanefnd á síðasta kjörtímabili og fékk þar kynningu á niðurstöðum PISA-könnunarinnar. Hún sagði ljóst að niðurstöðurnar væru óásættanlegar og að hún sem þingmaður í stjórnarandstöðu þá hefði vel getað slegið „ódýrar pólitískar keilur“ og bent á sökudólga í þeim ríkisstjórnum sem farið höfðu með menntamálin um lengri tíma.

„Ég valdi að fara ekki þá leið vegna þess að þetta er kollektífa ábyrgð okkar, allra okkar í stjórnmálunum, að setja okkur raunhæfa stefnu í menntamálum,“ sagði Dagbjört og hnýtti um leið í málshefjanda umræðunnar, Sigmund Davíð Gunnlaugsson, fyrir að færa ekki fram neinar lausnir, heldur benda bara á vandamál.

Við þurfum að stíga upp sem samfélag

Guðmundur Ari Sigurjónsson þingflokksformaður Samfylkingar tók einnig þátt í umræðunni um grunnskólans og benti á stóru myndina sem blasir við þegar kemur að námsárangri íslenskra barna.

„Börnin okkar og við reyndar líka erum við að verja allt of miklum tíma í skjá og afþreyingu sem veitir skammtíma gleði en dregur úr getu okkar til einbeitingar og djúprar hugsunar. Afleiðingin er sú að börn eru í auknum mæli að missa áhuga áhugann á að sinna náminu, á lestri bóka eða á mannlegum samskiptum. Á sama tíma hefur nemendahópurinn orðið fjölbreyttari og verkefni kennara flóknari,“ sagði Guðmundur Ari.

Hann fagnaði því hins vegar að verið að bregðast við þessari stöðu með markvissum aðgerðum og nefndi sérstaklega að núna á næstu vikum yrðu framkvæmd samræmd stöðupróf á hæfni nemenda í öllum grunnskólum landsins, samkvæmt nýju námsmati fyrir grunnskóla landsins, Matsferli, sem lögfestur var síðastliðið vor.

„Niðurstöðurnar munu varpa skýrara ljósi á stöðu nemenda og árlegar mælingar muni styðja við skólaþróun og mat á skólastarfi,“ sagði Guðmundur Ari og benti einnig á að búið væri að leggja fram frumvarp sem heimilar ráðherra að takmarka símanotkun grunnskólanema. Þar þyrftu heimilin þó að stíga upp líka.

Einnig nefndi Guðmundur Ari að styðja þyrfti við kennara svo þeir gætu forgangsraðað tíma sínum í að sinna kennslunni og að fjölga þyrfti öðru fagfólki innan skólana.

„En það sem skiptir mestu máli og mun örugglega hafa mest áhrif er að við stígum upp sem samfélag og að við gerum skýrar kröfur til barnanna okkar og tryggjum þann stuðning sem þau þurfa til að ná árangri. Námsárangur barna er nefnilega ekki einkamál kennarans eða skólans heldur samstarfsverkefni heimilis, skóla, íþrótta- og tómstundastarfs en í öflugu samstarfi þessara aðila liggur lykillinn að árangri framtíðar,“ sagði Guðmundur Ari.  

Discover more from KRATINN

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading