„Eitt af mikilvægustu verkefnum samfélagsins er að tryggja það að öll börn geti sótt faglega og öfluga menntun í öruggu umhverfi og náð árangri í menntakerfinu. Ég trúi því að öll börn geti náð árangri í menntun ef þau fá rétta umgjörð og væntingar frá foreldrum, samfélaginu og skólakerfinu.“
Svona hófst ræða Guðmundar Ara Sigurjónssonar, þingflokksformanns Samfylkingarinnar, í störfum þingsins í dag.
Hann bætti því við að nýlegar úttektir og rannsóknir og niðurstöður kannana sýni þó, því miður, að Ísland sé að dragast aftur úr þegar kemur að árangri nemenda í íslenskum grunnskólum og það sé sama hvort við horfum á það í samhengi við önnur lönd eða fyrri kynslóðir. „Á sama tíma og þetta er að eiga sér stað höfum við ekki framkvæmt samræmda mælingu í menntakerfi landsins í fimm ár þannig að við höfum verið í ákveðnu myrkri þegar kemur að því hvað liggur að baki breyttum námsárangri íslenskra nemenda. Í þessu myrkri hafa margir stigið fram með einfaldar tillögur sem þeir eru sannfærðir um að muni leysa öll vandamál menntakerfisins. Ef við breytum um eina lestraraðferð þá verða engin vandamál í menntakerfinu. Ef við tökum upp samræmd próf við lok grunnskóla þá verða engin vandamál í menntakerfinu.“
Guðmundur Ari sagðist vera þeirrar skoðunar lausnin væri ekki alveg svona einföld. „Við í allsherjar- og menntamálanefnd vorum í ferð í Hollandi í síðustu viku þar sem við fengum kynningu á hollenska menntakerfinu sem er í rauninni næstum því öfugt við okkar menntakerfi. Þar er megináherslan lögð á grunnfærnina, það er mjög stíft samræmt próf við lok 12 ára bekkjar þar sem nemendum er raðað í skóla og námsleiðir eftir því hvað kerfið heldur að þau geti náð langt. Þau eru að glíma við sömu vandamál og við.“
Lestrarkunnátta er að fara niður þar líkt og hér, kennaraskortur er að aukast og virðing fyrir menntakerfinu að dragast saman. „Við þurfum kannski aðeins að stíga frá svona upphrópunum og halda að einfaldar lausnir leysi flókin vandamál. Ég fagna því mjög að ríkisstjórnin lagði fram og samþykkti síðastliðið vor lög um matsferil sem verður framkvæmdur í öllum grunnskólum landsins. Þar munum við fá punktstöðu um það hver staðan er í íslensku menntakerfi og á þeirri punktstöðu getum við farið að byggja upp nýja sókn í menntamálum.“
Guðmundur Ari verður til viðtals í næsta hlaðvarpsþætti Kratans þar sem hann ræðir menntamál á breiðum grunni.
