Nú þegar stjórnarandstaða í viðvarandi áfalli yfir því að annað og ábyrgara fólk en hún stýri nú Íslandi inn í bjartari framtíð gleður þjóðina með málþófi og öðrum þinglegum stærilátum á aðventunni þá er ágætt að fá smá Kratakrydd í tilveruna.
Í síðasta þætti ársins er þingið og stjórnmálin gerð upp. Farið er yfir öll málþófsmetin sem andstaðan hefur sett, Pírati ársins er valinn úr hópi stjórnarandstæðinga og hann krýndur sem Björn Leví í skóm, versta fyrirspurnin krufin, leiðinlegasti ávaninn í þingsal opinberaður og afrek ríkisstjórnar á einu ári rakin, svo fátt eitt sé nefnt. Þá eru veitt góð ráð til að lifa af kjötdáið sem framundan er og fólk hvatt til þess að borða alltaf salatið sitt fyrst.
Hvort sem þið viljið fá smá birtu í skammdegið beint innan úr alþjóðlegu Kratabyltingunni eða viljið svæfa pirrandi frændann sem gerir ekkert annað en að fara með talpunkta úr Þjóðmálum eða annarri fjarhægris-mengun, þá er Kratinn meðalið.
Hlustið, deilið og njótið.
Kratinn, gengur á allt!
