Í vikunni samþykktu þingflokkar stjórnarflokkanna frumvarp um breytingar á hlutdeildarlánakerfinu og verður málið til umræðu á Alþingi á næstunni. Breytingarnar er hluti af fyrsta húsnæðispakka ríkisstjórnarinnar og eiga að leiða til þess að hlutdeildarlánakerfið nái markmiðum sínum og virki í reynd.
En hvaða breytingar á að gera á kerfinu? Við getum talað um að þær veigamestu séu í þremur liðum:
#1 Meira fé og mánaðarlegar úthlutanir
Verið er að tryggja fjármögnun úrræðisins til framtíðar og hækka árlega lánsfjárheimild HMS vegna lánanna úr 4 milljörðum kr. upp í 5,5 milljarða kr. á næsta ári. Þetta á að duga til að fjármagna 280-310 hlutdeildarlán árið 2026.
Nauðsynlegt er að tryggja fyrirsjáanlega fjármögnun til þessa úrræðis, því án þess er erfitt að fá verktaka til þess að hanna og byggja hagkvæmar íbúðir sem falla undir skilyrði hlutdeildarlána.
#2 Hærri hlutdeildarlán verða í boði
Tveir flokkar hlutdeildarlána eru í boði, almenn hlutdeildarlán og svo hlutdeildarlán fyrir tekjulægri einstaklinga. Síðarnefndu lánin hafa verið hærra hlutfall af kaupverðinu – og verða það áfram en stefnt er að því að hækka lánshlutfall beggja flokka.
Almenn hlutdeildarlán, sem til þessa hafa verið 20% af kaupverði, eiga samkvæmt frumvarpinu að geta numið allt að 30% af kaupverði. Þessi lán verða í boði fyrir einstaklinga sem hafa 10 milljónir króna í árstekjur (833 þús./mán.) eða sambúðarfólk sem hefur 15.965.000 kr. í árstekjur samanlagt (665 þús./mán á mann). Heimilt verður að hafa viðbótartekjur upp á 2.254.000 á ári fyrir hvert barn sem er á heimilinu.
Hlutdeildarlán fyrir tekjulægra fólk eiga svo að geta numið allt að 35% af kaupverði íbúða, en hlutfallið hefur verið 30% til þessa. Lagt er upp með að lægri tekjumörk hlutdeildarlánakerfisins verði 6,793 m.kr. á ári (566 þús./mán) fyrir einstaklinga en 10,62 m.kr. á ári (442 þús./mán á mann) fyrir sambúðarfólk. Við tekjumörkin bætast svo 2.254.000 kr. á ári fyrir hvert barn sem er á heimilinu.
#3 Greiðslubyrðarhlutfall einstaklinga rýmkað
Reynsla síðustu missera er sú að hlutdeildarlánakerfið hefur virkað illa fyrir tekjulága einstaklinga sem hyggjast nýta sér það til þess að komast inn á fasteignamarkað. Margir hafa að undanförnu fallið á greiðslubyrðarhlutfallinu, en reglur hafa verið í gildi um að fólk megi ekki greiða yfir 40% ráðstöfunartekna sinna í húsnæðiskostnað hafa leitt til synjana á umsóknum.
Í ljósi þessa hefur verið ákveðið að hækka hámarksgreiðslubyrðarhlutfallið upp í 45% fyrir einstaklinga sem nýta sér hlutdeildarlán. Hlutfallið fyrir sambúðarfólk verður áfram 40%.
Aðrar helstu breytingar
Til viðbótar við þetta er svo stefnt að því að breyta með reglugerð hversu dýrar nýjar íbúðir mega vera til þess að falla undir hlutdeildarlánakerfið, en reynsla síðustu missera hefur verið sú að verðmörkin eru of lág sem hefur leitt til þess að færri íbúðir á höfuðborgarsvæðinu hafa fallið undir skilyrði hlutdeildarlána.
Einnig á að gera þær breytingar að fólk má eiga allt að 10 prósent eigið fé án þess að það skerði hlutfall hlutdeildarlánsins sem það getur fengið, en í dag er þetta hlutfall 5 prósent. Þetta eykur hvata fólks til þess að leggja aukið eigið fé inn í kaupin og lækkar um leið lánshlutfall og þar með greiðslubyrði lántakenda.
Að öllu þessu virtu er ljóst að ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur að tryggja það að hlutdeildarlánakerfið virki raunverulega, fyrir fyrstu kaupendur og þau sem hafa verið fyrir utan fasteignamarkað í lengri tíma. Það skiptir máli.
