Hlaðvarp: Flokkar sem tala um glæpamenn, vilja hækka matvöru með tollastríði eða eyðileggja EES

Í Krata-hlaðvarpi vikunnar voru verndaraðgerðir Evrópusambandsins vegna innflutnings á járnblendi fyrirferðamiklar, enda kölluðu viðbrögð stjórnarandstöðuflokka á mikla umræðu. Formaður Sjálfstæðisflokks talaði enda um sambandið sem glæpamann, Framsókn lagði til að hækka matvælaverð á Íslandi með því að fara í tollastríð og Miðflokkurinn vildi hleypa EES-samningnum í uppnám. Þáttastjórnendur fara líka yfir hvaða stjórnarandstöðuflokk þau myndu ganga í ef þau yrðu neydd til að velja einhvern þeirra.

Í seinni hlutanum má heyra viðtal Arnars Þórs Ingólfssonar við Ásu Berglindi Hjálmarsdóttur sem er nýkomin af loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, COP30, í Brasilíu. Ása Berglind fór yfir upplifun sína af ráðstefnunni og líkti henni við Airwaves-tónlistarhátíðina, rosalega margt hafi verið í boði og fólk þurfti að velja sér sitt.

Ása Berglind fjallaði um áskoranir og tækifæri í loftslagsmálum, þar á meðal nauðsyn þess að ná utan um markmið Íslands, draga úr losun og nýta nýsköpun eins og þá sem Carbfix er að vinna að. Þrátt fyrir alvarlega stöðu minntu vísindamenn og sérfræðingar á ráðstefnunni á að enn sé hægt að bregðast við.

Hægt er að hlusta á þátt vikunnar hér að neðan:

Discover more from KRATINN

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading