Minnihlutinn á Alþingi hefur verið í stökustu vandræðum með að gera nokkuð sem á erindi við almenning í landinu frá því að þing var sett í febrúar. Hann er því sífellt í leit að einhverju sem hann geti gert að sínu. Við á ritstjórn Kratans skiljum mikilvægi sterkrar stjórnarandstöðu og höfum áhyggjur af erindaleysi vina okkar í andstöðunni. Því ætlum við, þegar við á, að reyna að hjálpa þeim að gera málin þeirra betri og auka þar með líkurnar á að þau nái að skipta venjulegt vinnandi fólk máli. Í þessari viku tókum við fyrir nýtt frumvarp sem flestir þingmenn Sjálfstæðisflokks standa að, og snýst um varnir gegn hagsmunaárekstrum í Stjórnarráði Íslands.
Það hefur ekki farið framhjá neinum að minnihlutinn vonaðist til þess að Evrópusambandsaðild yrði allsráðandi á dagskrá á yfirstandandi þingi. Vandamálið við þessa taktík er að þjóðaratkvæðagreiðsla um aðildarviðræður er ekki á þingmálaskrá þennan veturinn, og þau því í rifrildi við sig sjálf.
Í áðurnefndu frumvarpi eru níu þingmenn Sjálfstæðisflokks – þar á meðal varaformaður, þingflokksformaður og allir fjórir þingmennirnir sem eru á myndinni sem fylgir með þessari grein – að reyna að vera sniðug og hundaflauta um að möguleg aðild að Evrópusambandinu snúist einvörðungu um að embættismenn og aðstoðarmenn ráðherra vilji fá vinnu í Brussel.
Inntak frumvarpsins er því það að slíkir sem sinni með einhverjum hætti hagsmunagæslu fyrir Ísland í alþjóðasamningum megi ekki fá vinnu hjá þeim sem samið er við í 18 mánuði eftir að þeir hætta í íslensku vinnunni sinni. „Frumvarpið er sett fram í samhengi við alþjóðlega umræðu um siðferði og hagsmunaárekstra í stjórnmálum. Svokölluð snúningshurðarregla (e. revolving door) er þekkt í stjórnsýslurétti og siðareglum stjórnvalda víða um heim.“
Í stað þess að hlægja af fyrirsjáanleikanum í þessu frekar illa hannaða pólitíska poti þá höfum við ákveðið að hjálpa þingmönnunum níu að betrumbæta frumvarpið þannig að það nái frekar markmiði sínu. Þannig mætti bæta við frumvarpið að aðstoðarmenn ráðherra ættu ekki að fá umbun fyrir pólitískan stuðning með skipun í sendiherrastöður á pólitískum grunni, sérstaklega þegar þeir hafa enga reynslu af utanríkisþjónustu. Eða koma í veg fyrir að ráðherrar sem úthluta takmörkuðum gæðum til valinna atvinnugreina fari beint að starfa fyrir sömu atvinnugreinar þegar ráðherraferlinum lýkur. Þá mætti líka leggja til bann við tilfærslu starfsmanna úr Viðskiptaráði og Samtökum atvinnulífsins til Sjálfstæðisflokksins, og öfugt. Svona er hægt að halda lengi áfram með raunhæfum dæmum úr frændhyglis- og sérhagsmunagæslutilveru Sjálfstæðisflokks.
Þið gerið þetta að ykkar. Ekkert að þakka.
