Logi ætlar ekki að hlaupa til vegna hálfkveðinna vísna, hálfsannleiks og dylgja Snorra um RÚV

Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, deilir ekki áhyggjum þingmanns Miðflokksins um hlutleysi Ríkisútvarpsins (RÚV) og að besta mælingin á hlutleysi fjölmiðla sé traust á þeim. Ráðherrann sagðist ekki nenna „að hlaupa til vegna þess að háttvirtur þingmaður kemur ítrekað fram með hálfkveðnar vísur, hálfsannleik og dylgjur. Hann verður einfaldlega að nefna einhver dæmi, einhver skýr dæmi um það sem hann er að tala um. Ekki láta hlutina alltaf liggja í loftinu.“

Tilefnið var óundirbúin fyrirspurn Snorra Mássonar í gær þar sem varaformaður Miðflokksins fór fram á úttekt á vinnubrögðum RÚV vegna þess að BBC í Bretlandi hafði gert mistök sem höfðu kostað tvo stjórnendur þess starfið.

Snorri hélt því einnig fram að RÚV, sem nýtur langmests trausts samkvæmt könnunum og flestir svarendur þeirra eru sammála um sé óháð sérhagsmunum, tæki „afstöðu í mörgum stórum málum“. Hann nefndi þó ekki eitt sértækt dæmi um slík mál heldur sagðist eiga við transmál, loftslagsmál, útlendingamál og erlend stjórnmál. Snorri sagði enn fremur að „margir“ væru farnir að telja að „RÚV sé hreinlega að vinna gegn sinni heimssýn“. Hann fylgdi því svo eftir með staðhæfingu um að hann þættist vita að Logi myndi „eftir sem áður gaslýsa okkur um þessa pólitísku slagsíðu Ríkisútvarpsins.“

Úr skýrslu Fjölmiðlanefndar sem birt var í sumar.

Logi svaraði því til að  hann væri ekki sannfærður um að „ég sé sá af okkur tveimur háttvirtum þingmönnum sem er flinkastur í gaslýsingum hér.“ Ráðherrann fór svo yfir það í máli sínu að það hafi ítrekað komið fram, í könnun eftir könnun, að RÚV njóti gríðarlegs trausts og því deili hann ekki áhyggjum Snorra af því að RÚV gangi einhliða fram og stundi einhvers konar innrætingu eða haldi hlutunum bjöguðum. Eina slíka könnun, frá Fjölmiðlanefnd í sumar, má sjá hér að ofan.

Logi sagði það hins vegar sjálfsagða kröfu að RÚV, sem fái mikið fé á fjárlögum og gegni miklu og mikilvægu hlutverki sem almannaheillaútvarp, sé undir stöðugri skoðun og gagnrýni. „Ég hef nú ekki séð annað en að Ríkisútvarpið sé kannski meðal þeirra opinberu stofnana sem oftast fá gagnrýni héðan úr þessum þingsal og kannski hefur háttvirtur þingmaður ekki haldið margar ræður án þess að víkja að því. Ég deili því ekki áhyggjum háttvirts þingmanns af hlutleysi Ríkisútvarpsins.“

Discover more from KRATINN

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading