Í Hlaðvarpi Kratans þessa vikuna er rætt um Kratabylgjuna sem skollið hefur á heiminn undanfarin misseri. Hvert sem litið er eru stjórnmálaöfl og -menn að sigra í kosningum með sameinandi kjarnaáherslur jafnaðarmennskunnar að leiðarljósi ásamt jákvæðum skilaboðum um gæði og gagn þeirra samfélaga sem þau starfa fyrir. Þar verður líka rætt um stöðu ríkislögreglustjóra, vangetu Pírata til að kjósa sér formann eftir að þeir ákváðu loks að kjósa sér formann, óbreytta stöðu stjórnarandstöðunnar frá síðustu kosningum að því frátöldu að fylgi færist á milli hægri flokka og Arnaldarvísitöluna svokölluðu.
Í seinni hluta þáttarins fara Þórður Snær Júlíusson og Arnar Þór Ingólfsson yfir risastóra fyrsta húsnæðispakkann sem ríkisstjórnin kynnti nýverið. Pakka þar sem íbúðir eru skilgreindar sem heimili ekki fjárfestingavara, framboð er aukið og kerfi sem voru ekki að virka löguð þannig að þau þjóni tilgangi sínum.
Hlustið á þáttinn í heild sinni hér að neðan:
