„Allir landsmenn eiga skilið að fá að velja sér búsetu eftir fremsta megni”

Sæunn Gísladóttir, varaþingmaður Samfylkingarinnar, settist í fyrsta sinn á þing í vikunni og flutti jómfrúarræðu sína í störfum þingsins á þriðjudag. Hægt er að lesa ræðu hennar hér að neðan:

„Í dag mæti ég í þingsal sem fulltrúi Norðausturkjördæmis. Ég er fædd og uppalin á höfuðborgarsvæðinu og erlendis en brenn fyrir búsetufrelsi. Ég valdi að flýta til Siglufjarðar án sérstakrar tengingar þangað en forsenda þess var að þar væru almennilegir innviðir. Í Fjallabyggð og flestum sambærilegum stöðum í kjördæminu búum við vel. Þar eru öflugir skólar og góð heilbrigðisþjónusta svo eitthvað sé nefnt. Staðan er góð en hún er brothætt, eins og staðan á Bakka kennir okkur. Það má lítið bregða út af. Það þarf t.d. bara einn læknir að flytja annað til að mönnun á heilbrigðisstofnuninni fari í uppnám. Ef einn leikskólakennari fer í veikindaleyfi getur það haft áhrif á vistunartíma allra barna.

Ísland er mjög óvenjulegt þegar kemur að dreifingu byggðar. Um 64% íbúa búa á höfuðborgarsvæðinu og 80% í klukkutíma fjarlægð frá því. Svona hátt hlutfall íbúa í höfuðborg er mjög sjaldgæft og er aðeins að finna í nokkrum löndum á borð við Djíbútí og Katar. Við megum alveg staldra við og velta því fyrir okkur hvort þetta sé æskileg þróun. Í Noregi er gripið inn í þegar þróunin fer að fara í þessa óæskilegu átt. Við eigum að vera óhrædd við að feta svipaða braut. Við eigum að viðhalda alvörubúsetustefnu og bæta innviði til að stuðla að búsetufrelsi um allt land. Í þessu felst að rjúfa kyrrstöðuna og hefja jarðgangagerð en einnig ættum við að nýta þær leiðir sem nú þegar eru heimildir fyrir í lögum, t.d. námslánaafslátt þegar skortur er á sérfræðingum á landsbyggðinni.

Allir landsmenn eiga skilið að fá að velja sér búsetu eftir fremsta megni og við ættum að stuðla að því.“

,

Discover more from KRATINN

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading