Vill auka hvata til kennslu STEM-greina

Í síðustu viku stóð Ingvar Þóroddsson, þingmaður Viðreisnar, fyrir sérstakri umræðu um stöðu verkfræði-, stærðfræði-, raunvísinda- og náttúruvísindanáms á háskólastigi, svokallaðra STEM-greina. Til svara var Logi Einarsson menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra.

Ingvar rifjaði upp að í desember 2023 samþykkti Alþingi þingsályktunartillögu frá Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur sem þá var háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, um stefnumótandi aðgerðir til eflingar þekkingarsamfélags á Íslandi til ársins 2025. Meðal aðgerða var átak í STEM-kennsluaðferðum og markmið að byggja upp hæfni og auka þekkingu til framtíðar. Svara þannig þeim hröðu breytingum sem hafa átt sér stað í samfélaginu með breyttum áherslum í menntakerfinu.

Í fjármálaáætlunum var þessu svo fylgt eftir en nú er staðan sú að nemendum í þessum greinum hefur, þrátt fyrir þetta átak, farið fækkandi. Ingvar spurði Loga hvernig hann hygðist bregðast við þessari fækkun.

Logi tók umræðunni fagnandi og sagði að honum þætti menntakerfið vera undirstaða nýsköpunar og verðmætasköpunar. Markmiðið væri enn að auka fjölda þeirra sem útskrifast úr þessum greinum. Hann staðfesti þessa fækkun og fór svo yfir nokkur dæmi um hvað ráðuneytið er að gera til að sporna gegn þessari þróun.

Hann nefndi m.a. að ráðuneytið veitti 100 milljóna króna styrk til stuðnings kennslu í þessum greinum, sem skiptist milli háskólanna hlutfallslega, í takt við fjölda nemenda. Ráðuneytið hefur líka veitt fé til að þróa leiðir til að undirbúa framhaldsskólanemendur betur fyrir háskólanám í STEM-greinum.

Nú er verið að skoða hvernig hægt er að hvetja háskólana til að leggja meiri áherslu á þessar greinar og telur Logi vænlegast að endurskoða reiknilíkan háskólanna. „Við getum ekki farið beint inn og sagt rektorum fyrir verkum en við getum skapað hvata til að auka áherslu á þetta nám,“ sagði Logi.

Logi fór svo yfir mikilvægi þess að vekja áhuga á þessum greinum miklu fyrr, þ.e. í grunnskólanum og í ljósi þess er mikilvægt að starfandi séu kennarar með STEM-þekkingu á yngri skólastigum. 

Discover more from KRATINN

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading