Nafnlausir dálkar með málefnastarf Samfylkingar á heilanum

Eins og margir lesendur Kratans hafa eflaust heyrt og séð voru línur lagðar fyrir næstu skref í málefnastarfi Samfylkingarinnar á fundi flokksstjórnar á Hellu um síðustu helgi. Fókusinn verður settur á daglegt líf fólksins í landinu og það sem Samfylkingin getur gert til þess að létta það, með einum eða öðrum hætti.

Leitað verður til landsmanna í vinnunni. Í ræðu sinni á Hellu sagði Kristrún Frostadóttir formaður frá því að á næstum vikum og mánuðum myndum við „banka á dyr hjá heimilum, fyrirtækjum og stofnunum og spyrja: Hvernig getur Samfylkingin aðstoðað? Hvernig léttum við lífið þitt? Hvernig bætum við daglega lífið?“

Þetta vakti ljóslega töluverða athygli og rataði í nafnlausan dálk Morgunblaðsins, Staksteina, fyrr í vikunni og reyndar líka í nafnlausan dálk Viðskiptablaðsins. Þar voru rifjuð upp orð Ronalds Reagans um að ekkert væri ógnvænlegra en að einhver frá hinu opinbera segðist vera kominn til þess að aðstoða.

Í Mogganum var létt skot frá ritstjórn Moggans á Kristrúnu og flokkinn, undir fyrirsögninni „Samfylkingin hótar heimilunum“, en í dálknum var spurt hvort það væri ekki „óþarfi að hafa í hótunum við aumingja þjóðina um að úti í myrkrinu bíði útsendarar Samfylkingarinnar þess að rjúfa friðhelgi heimilisins“. Týr Viðskiptablaðsins sagðist ekki spenntur fyrir því að fá Jónas Má Torfason, formann stýrihópsins, inn á gafl til sín að spyrja hver væri að passa börnin og hvað ætti að hafa í kvöldmatinn.

Við tökum þessu auðvitað bara sem hinni bestu auglýsingu fyrir hið kröftuga samtal sem er að fara af stað um þjóðina, um það hvernig Samfylkingin getur þjónað sem best. Við erum nefnilega flokkur í þjónustu þjóðar.

Stýrihópurinn sem leiðir vinnu Samfylkingar um daglega lífið er skipaður góðu fólki, héðan og þaðan af landinu, sem flest er í einhverjum tengslum við sveitarstjórnarstigið.

Jónas Már, sem er lögfræðingur og Kópavogsbúi, leiðir hópinn eins og áður sagði og einnig eru í honum þau Árni Rúnar Þorvaldsson, Hafnfirðingur í sveitarstjórn, kennari, stjórnarmaður í Samfylkingu og formaður sveitarstjórnarráðs,  Eydís Ásbjörnsdóttir, Eskfirðingur á Alþingi og fyrrum skólameistari Verkmenntaskóla Austurlands og Eyrún Fríða Árnadóttir, Hornfirðingur í sveitarstjórn og formaður bæjarráðs.

Samtalið mun byrja breitt, enda er nærþjónustan öll undir þegar kemur að sveitarstjórnarkosningunum. Síðan verður skerpt á áherslunum í útspili fyrir kosningarnar í vor. Þar verða lagðar fram afmarkaðar og raunhæfar aðgerðir til að bæta daglega lífið um allt land.

Discover more from KRATINN

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading