„Ég er mjög ánægð með þingmálaskrána. Hún er rosalega pólitísk. Það er mikið af stórum málum þarna inni.“ Þetta segir Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, aðspurð um komandi þingvetur í nýjasta hlaðvarpi Kratans.
Á þingmálaskránni séu líka mál sem döguðu uppi hjá síðustu ríkisstjórn vegna þess að hún gat ekki gengið í takt eða tekið ákvarðanir og flokkarnir sem stóðu að henni komu jafnvel ekki í gegnum eigin þingflokka. Kristrún segir þetta samt sem áður góð mál og nú þegar komin sé til valda ríkisstjórn sem getur tekið ákvarðanir og gengur í takt þá eigi ekki að henda þeim út af borðinu heldur klára þau.
Kristrún segir það sína skoðun að skortur á sannfæringu og eftirfylgni hafi skaðað pólitíkina undanfarin ár. „Það var alltaf einhvern veginn verið að reyna að snúa sig út úr því sem verið var að gera. Eða verið að tala í kringum hlutina og hagsmunamatið í ríkisstjórninni hefur verið þannig að fólk gat ekki staðið saman um ákveðna hluti. Maður er kjörinn í svona embætti til að taka erfiðar ákvarðanir fyrir hönd fólks.“
Betra sé að taka ákvarðanir, standa með þeim og fylgja þeim eftir. Kjörtímabilið sé fjögur ár og Kristrún segir að það þurfi einfaldlega stundum að taka ákvarðanir sem séu óvinsælar núna en komi landinu á betri stað innan kjörtímabilsins. „Ég er alveg til í að taka hitann fyrir það í smá tíma. Mér finnst það ekki óþægilegt.“
Mjög meðvituð um að vera að koma úr ákveðnu skjóli
Forsætisráðherra er sömuleiðis afar ánægð með fyrsta fjárlagafrumvarp ríkisstjórnar sinnar. „Ég er mjög meðvituð um það að við séum að koma úr ákveðnu skjóli. Ég hef sagt það margoft, við höfum talað um það í ríkisstjórninni og í þingflokkunum líka. Nú eru þetta bara við og það er bannað að kenna öðrum um – ekki það að við höfum mikið verið að því undanfarna níu mánuði. Það er bara bannað að benda fingri á aðra.“
Fólk úti í samfélaginu vilji ekki heyra fólk í stöðu eins og hún og ríkisstjórnin eru í vera að kvarta. „Maður verður bara að gera hlutina. Hefði ég viljað sjá eitthvað aðeins öðruvísi í fjárlögunum ef ég hefði bara stýrt öllu, það er að segja bara hvert verðbólgustigið er og hvernig vextirnir eru og getan í kerfinu og jafnvel bara verið ein ríkisstjórn? Já. En þetta er staðan sem við erum í og maður er kosinn til að vinna út frá henni.“
Hún segist meðvituð um að ef ríkisstjórnin myndi reyna að hrinda öllum málunum sínum í framkvæmd, öllum kerfisbreytingum, styrkja allt sem þau ætluðu sér að styrkja á fyrsta árinu, og það leiði til þess að afkoma ríkissjóðs versni, vextir og verðbólga hækki, þá sé ekki hægt að skorast undan ábyrgð. „Þá erum við búin að klúðra þessu. Þannig að maður verður einhvern veginn að hafa skynbragð á það að gefa hlutunum ákveðinn tíma. Þess vegna höfum við sagt: við erum í þeim aðstæðum núna að við verðum að tryggja það að við náum að fara í ákveðna tiltekt.“
