„Ég borða eiginlega alltaf kvöldmat heima hjá mér“

„Ég er mjög heppin að því leytinu til að vera með mjög jarðtengt fólk í kringum mig. Það er enginn af mínum nánustu vinum í pólitík. Fjölskyldan mín er algjörlega ótengd þessu. Maðurinn minn, ég man eftir að þegar ég kom úr lokaumræðunni, kappræðunum á RÚV fyrir kosningar, og ég kom heim þá var hann að horfa á einhverja spennumynd í sjónvarpinu. Hann er náttúrulega ótrúlega stuðningsríkur og við tölum mjög mikið um vinnuna mína, en hann passar sig. Hann horfir ekki á mig í Kastljósi og hann er ekki að greina allt sem ég er að gera. Og svo á ég tvö lítil börn. Þannig að ég er í ótrúlega jarðtengdu umhverfi þar sem það snýst ekki allt um mig, þó að það snúist allt um mig þar sem eðlilega hefur þetta rosalega afleidd áhrif. En fólk í kringum mig er ekki svona upptekið af vinnunni minni.“

Þetta segir Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, í nýjasta hlaðvarpi Kratans.

Hún segist eiga mjög auðvelt með að segja nei við hlutum og vera frek á tímann sinn. „Ég er með mjög skýrar vinnureglur um hvað ég geri og hvað ekki. Ég er aldrei hangandi einhvers staðar og er með mjög skýrar væntingar um hvert ég mæti og hvert ekki. Ég fæ rosalega mikið af alls konar boðum. Opna hitt, opna þetta, mæta í þennan kokteil, mæta í þetta partí. Ég segi nei við mjög mörgu.“

Það séu auðvitað og eðlilega alls kyns viðburðir sem forsætisráðherra verði að mæta á en Kristrún sker mjög niður hina. Henni hafi gengið vel að forgangsraða. „Ég er með lítil börn og ef það er kokteill milli fimm og sjö þá vil ég bara frekar vera heima hjá mér. Og ég vinn oftast þannig að ég vakna mjög snemma á morgnanna. Ef ég er með ráðherrafundi eða ríkisstjórnarfundi þá undirbý ég mig á morgnanna áður en börnin mín vakna. Svo sinni ég þeim og mæti í vinnuna kannski hálf níu. Ég reyni að sækja nokkrum sinnum í viku. Og ég borða eiginlega alltaf kvöldmat heima hjá mér.“

Það sem líði fyrir sé félagslífið hennar. „Ég geri náttúrulega mjög lítið annað en að vera í vinnunni og að vera með manninum mínum og börnunum. En ég er svo heppinn að maðurinn minn er besti vinur minn. Ég hef mjög gaman af honum og hef ekki einhverja mikla þörf fyrir að gera hluti án hans. Ég er bara mjög sátt við það að vera á þeim tímapunkti í lífi mínu þar sem ég fer ekkert í bíó eða í einhverja marga göngutúra eða út að borða með vinkonum mínum og mér finnst það bara allt í lagi. Þannig að þetta hefur gengið ágætlega.“

Discover more from KRATINN

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading