Kristrún í stefnuræðu: „Látum lýðræðið virka“

Kristrún

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra sagði í stefnuræðu sinni á miðvikudagskvöld að þingmálaskrá vetrarins væri „stórpólitísk“ að því leyti að hún hreyfði við íslensku samfélagi, en á sama tíma væri hún trúverðug og takmörkuð að umfangi, svo skilvirk afgreiðsla mála í þinginu væri möguleg.

Hún sagði alla geta verið sammála um það að þingstörfin hefðu átt að ganga betur síðastliðið vor og sagði að þar lægi ábyrgðin bæði hjá meirihluta og minnihluta.

„Ég höfða til ábyrgðar þingmanna allra flokka: Látum lýðræðið virka. Ræðum málin og greiðum svo atkvæði og leiðum þau þannig til lykta. Það er skylda okkar gagnvart þjóðinni og lýðræðinu í landinu,“ sagði Kristrún.

Forsætisráðherra ræddi einnig um tiltekt, sem er leiðarstef í þeim verkum sem eru framundan hjá ríkisstjórninni.

„Á öllum heimilum kemur sá tími að það þarf að staldra við og taka svolítið hressilega til. Og þar er ríkisheimilið engin undantekning. Tiltekt ríkisstjórnarinnar á sér ýmsar birtingarmyndir: Við erum að laga ríkisfjármálin með því að taka til í kerfinu, hagræða og skrúfa fyrir skattaglufur og með því að ná betri stjórn á starfsemi ríkisins heilt yfir. Þetta er mikilvægt,“ sagði Kristrún og fór yfir að tillögur um hagsýni í ríkisrekstri sem bárust víða að úr samfélaginu hafi skilað sér í yfir 100 milljarða uppsafnaðri hagræðingu á tíma nýrrar fjármálaáætlunar.

„Þetta sést strax í fjárlögum ársins 2026 sem verða fyrir vikið mun nær sjálfbærum rekstri en áður stefndi í. Þannig færumst við líka nær settu marki um að fjárlög ársins 2027 verði fyrstu hallalausu fjárlög ríkisins í áratug,“ sagði Kristrún en bætti hins vegar við að það væri ljóst að ef það þyrfti að „gera meira hraðar til að vinna niður vexti og verðbólgu þá myndi stjórnin gera meira hraðar.

„Það er alveg á hreinu. Þessi ríkisstjórn tekur ábyrgð á stjórn efnahagsmála í landinu, fulla ábyrgð, og við munum aldrei hlaupast undan eða benda fingri á alla aðra. Ekki á minni vakt,“ sagði Kristrún.

Hún sagði ljóst að það yrði ekki allir sáttir við allt sem ríkisstjórnin ætlaði sér að ráðast í. „Sumt verður erfitt en við ætlum áfram því það er betra að vera með ríkisstjórn sem tekur ákvarðanir og framkvæmir, þó að margir verði ósáttir með einstök mál, frekar en ríkisstjórn sem getur ekki tekið ákvarðanir og gerir alla ósátta,“ sagði forsætisráðherra.

Kristrún fór í ræðunni yfir hluta af þeim fjölmörgu tiltektarmálum sem til stendur að ráðast og ræddi um mótun atvinnustefnu fyrir Ísland, vaxtarplans fram til ársins 2035, sem á að leggja grunn að betri hagvexti á Íslandi, meiri hagvexti á mann, með minna álagi á samfélag, umhverfi og innviði.

„Samhliða áherslu ríkisstjórnarinnar á tiltekt og verðmætasköpun þá munum við um leið hefjast handa við að styrkja öryggi og innviði landsins,“ sagði Kristrún og nefndi sérstaklega öryggi á vegum landsins, öryggi borgaranna og áframhaldandi örugg skref í heilbrigðis- og öldrunarmálum, í því samhengi.

„Ég vona að við vinnum gagn á þessu þingi í þágu lands og þjóðar,“ sagði Kristrún og bætti við að þegar upp væri staðið væri þingheimur sammála um býsna margt.

„Við viljum skapa fallegt samfélag frelsis og mannvirðingar á Íslandi. Þá skiptir máli að við hlustum á hvert annað og reynum að skilja hvaðan fólk er að koma þótt við séum ósammála. En það skiptir ekki síður máli hvernig við tölum hvert við annað því að við komumst nokkuð langt með virðingu og ef við leitum síðan lausna á þeim grunni með því að leiða fólk saman í stað þess að ýta undir það sem sundrar og færast fjær hvert öðru,“ sagði forsætisráðherra.

Kristrún sagði að ríkisstjórnin myndi standa vörð um mannréttindi allra landsmanna, að sjálfsögðu, og að hún gengi út frá því að það ætti líka við um langflesta, ef ekki alla þingmenn í stjórnarandstöðu. Allir hefðu fullt málfrelsi, en orðum fylgdi ábyrgð og tónn skipti máli.

„Gott fólk, virðum og elskum náungann. Þá mun okkur farnast vel,“ sagði Kristrún Frostadóttir í ræðu sinni.

Discover more from KRATINN

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading