„Það mætti lýsa ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur með tveimur orðum. Hún er kjörkuð og framsýn. Hún þorir að ráðast í breytingar, breyta kerfum. Ríkisstjórnin þorir,“ sagði Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, í umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra á miðvikudagskvöld.
„Við sögðumst ætla að laga ríkisfjármálin og við erum að laga ríkisfjármálin. Við sögðumst ætla að einfalda regluverk og við erum að gera það. Við sögðumst ætla að taka örugg skref í heilbrigðis- og öldrunarmálum og það erum við svo sannarlega að gera,“ sagði Logi einnig.
Hann sagði að breytingarnar sem boðaðar hefðu verið allt frá upphafi myndu leggja grunninn að góðu og skapandi samfélagi sem gæti tekist á við stórar áskoranir.
„Framtíðin krefst þess einfaldlega að við beinum sjónum okkar enn meira að hugvitinu. Það er líklega eina auðlindin sem er ekki bara ótæmandi heldur vex með aukinni nýtingu. Þetta ætlar ríkisstjórnin að gera, horfa lengra fram í tímann. Við sáum í dag til að uppskera ríkulega síðar,“ sagði Logi og nefndi atvinnustefnuna sem er í mótun sem gott dæmi um þetta.
„Hlutverk míns ráðuneytis er að tryggja að hvergi sé veikur hlekkur í vistkerfi hugverkageirans og nýsköpunar, frá hugmynd til útfærslu og loks til notkunar. Markmið ríkisstjórnarinnar er skýrt; að fjárfesting samfélagsins alls í nýsköpun verði 3,5% af vergri landsframleiðslu árið 2035,“ sagði Logi í ræðunni.
Hann ræddi einnig um málefni háskólanna og sagði að án öflugar háskóla væri engin framsýn atvinnustefna. Þess vegna væri ráðuneytið nú farið af stað með mótun fyrstu háskólastefnunnar á Íslandi. „Þetta gerum við til þess að við getum byggt skýra sýn á það hvert við stefnum og hvernig við komumst þangað. Háskólarnir eiga að styrkja okkur í samkeppni við önnur lönd,“ sagði Logi.
Ráðherrann bætti því við að háskólar án nemenda væru lítils virði. Þess vegna myndi hann á komandi dögum leggja fram frumvarp um breytingar á Menntasjóði námsmanna og strax í framhaldinu ráðast í heildarendurskoðun á Menntasjóðnum, til dæmis væri augljóst að bæta þyrfti framfærslu nemenda.
Logi minntist á að sameiningar ýmissa menningarstofnana hefðu verið boðaðar, ekki einungis til að nýta fjármuni betur heldur til að styðja enn betur við menningarlíf landsins. Hann ræddi einnig um að menning og listir væru ekki lúxus, heldur límið í samfélaginu.
„Samfélag sem skapar ekki mun hvorki viðhalda tungumáli sínu né sjálfsmynd. En skapandi samfélag elur af sér hugmyndaríkar kynslóðir sem munu gegna lykilhlutverki í þeirri nýsköpun, tækni og vísindum sem framtíð og velferð Íslands mun þurfa að hvíla á. Til þess þarf að taka stórar ákvarðanir. Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur þorir að ráðast í breytingar. Það er betra að framkvæma, mæta mótstöðu og ná árangri en að reyna að geðjast öllum og enda á að gera ekki neitt,“ sagði Logi Einarsson.
