Öryggismál og heimsókn til Haag

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra fóru á sögulegan leiðtogafund Atlantshafsbandalagsins á dögunum, sem haldinn var í Haag.

Þar sammæltust leiðtogar bandalagsríkjanna um að stórefla okkar sameiginlegu varnir. Ríkisstjórnin hefur ákveðið að auka framlög til varnar- og öryggismála upp í 1,5 prósent af vergri landsframleiðslu á næstu 10 árum. Meðal annars er á dagskránni að styrkja getu Landshelgisgæslunnar og annarra mikilvægra samfélagslegra innviða, auka viðspyrnu okkar gagnvart netárásum og fleira.

Framlag Íslands verður áfram mun lægra en framlög flestra annarra bandalagsríkja, sem hafa skuldbundið sig til að verja 5 prósentum af vergri landsframleiðslu til varnar- og öryggismála.

Við leyfum Kristrúnu að eiga orðið:

„Við ætlum að styrkja innviði heima sem styðja við öryggi og varnir Íslands. En það verður engin breyting á sambandi okkar við NATO. Ég átti meðal annars gott samtal við forseta Bandaríkjanna um varnir Íslands. Það er alveg ljóst að varnarsamningurinn við Bandaríkin verður áfram grunnstoð í okkar utanríkisstefnu. Frumskylda ríkisstjórnar er að standa vörð um þjóðaröryggi. Og það mun ríkisstjórnin gera af heilum hug.

Þá hvatti ég Bandaríkjaforseta til að beita sér fyrir vopnahléi á Gaza á leiðtogafundinum sjálfum. Þar kom sömuleiðis fram aukin áhersla á öryggismál í Norður-Atlantshafi og við utanríkisráðherra áttum fund með leiðtogum Norðurlanda og Kanada um aukið samstarf ríkjanna á norðurslóðum.”

,

Discover more from KRATINN

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading