Á mánudag var á dagskrá þingsins, í fyrsta sinn á þessu kjörtímabili, skrifleg fyrirspurn til munnlegs svars frá ráðherra. Þetta fyrirspurnarform hefur verið lítið notað síðustu ár, en er ein leið þingheims til að eiga samtal við ráðherra um tiltekin málefni.
Fyrsta fyrirspurnin sem tekin var fyrir var frá okkar konu, Eydísi Ásbjörnsdóttur þingmanni Norðausturkjördæmis, en hún spurði atvinnuvegaráðherra um nýtingu svokallaðra hliðarstrauma frá uppsjávarfiski til manneldis. Eydís hefur áður bent á að hliðarafurðir eins og hausar, hryggir og innyfli séu síður nýttar til manneldis hérlendis en t.d. í Noregi, vegna mismunandi túlkunar á Evrópureglum og fylgdi málinu eftir með skriflegri fyrirspurn til ráðherrans, sem svar fékkst við á mánudaginn.
„Ég tel að það ætti að vera markmið okkar að fylgja þessu fordæmi Norðmanna, hámarka verðmætasköpun og styðja við vistvæna matvælaframleiðslu,“ sagði Eydís m.a. í ræðu sinni um málið.
Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra sagði að það væri mikilvægt að fá umræðu í gang um þessi mál, sem hefði verið til skoðunar, meðal annars hefði verið fundað með norskum stjórnvöldum um túlkun á umræddum reglum.
Niðurstaðan, sagði ráðherra, er að Matvælastofnun muni breyta framkvæmd eftirlits síns, með þeim hætti að heimilt verði að nýta hliðarstrauma í ríkari mæli í framleiðslu á vörum til manneldis. Trú ráðherra er að eftir að þessi vinna við breytt eftirlit fer fram verði hægt að nýta þessa hliðarstrauma í átt að aukinni verðmætasköpun.
