Vikan: 100 daga ríkisstjórn og fjármálaáætlun

Ríkisstjórnin fagnaði á mánudag 100 daga afmæli. Margt hefur áunnist síðan Samfylkingin, Viðreisn og Flokkur fólksins tóku við stjórn landsins og við erum bara rétt að byrja.

Fjármálaáætlun næstu fimm ára sem sett var fram á mánudag sýnir skýran mun á nýrri ríkisstjórn og fyrri valdhöfum. Hallarekstur ríkissjóðs verður stöðvaður fyrr en áætlað var og gert er ráð fyrir því að fjárlög ríkissjóðs verði hallalaus strax árið 2027. Ófjármagnaðar skattalækkanir og óútfærðar „afkomubætandi ráðstafanir“ eru ekki á stefnuskrá þessarar ríkisstjórnar. Flatur niðurskurður er það heldur ekki. Ríkisstjórnin ætlar í skynsamlegar aðgerðir til að nýta opinbert fé betur, en ekki til að skerða þjónustu.

Það helsta úr fjármálaáætlun

Stefnt var að koma fjármálaáætlun til nefndar í dag, föstudag, en það frestaðist en nýtt fyrirkomulag vafðist fyrir einhverjum þingmönnum. Áframhaldandi umræða um hana verður tekin í næstu viku. Helstu atriði hennar eru eftirfarandi:

Fjárlög verða hallalaus árið 2027 og stöðugleikaregla innleidd.

Engar óútfærðar „afkomubætandi ráðstafanir” en ráðist verður í hagræðingu sem mun skila 107 milljörðum króna til annarra verkefna á tímabilinu. Þar verður til að mynda ná fram mikilli hagræðingu í opinberum innkaupum.

Útgjaldaaukning í krónum talið er mest í félags- og tryggingamálum, heilbrigðismálum og samgöngumálum.

Framlög til utanríkismála muni aukast hlutfallslega mest, enda stöndum við frammi fyrir breyttum heimi.

Engar breytingar á sköttum sem leggjast á venjulegt vinnandi fólk. Veiðigjöld verða leiðrétt, tekið verður upp auðlindagjald fyrir aðgang ferðamanna að náttúruperlum og fiskeldisgjald hækkað. Þá mun kílómetragjald verða innleitt með þeim afleiðingum að greitt verður fyrir notkun á vegasamgöngum.

Processing…
Success! You're on the list.

Discover more from KRATINN

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading