Í nýrri Gallup könnun, sem birt var á þriðjudag, kom fram að Samfylkingin er langstærsti flokkur landsins með 27 prósent fylgi. Við höfum bætt við okkur 6,2 prósentustigum frá kosningum sem er miklu meiri aukning en hjá nokkrum öðrum flokki.
Að óbreyttu myndi það skila okkur 19 þingmönnum, sem er fjórum fleiri en Samfylkingin er með í dag. Stjórnin sem mynduð var með Viðreisn og Flokki fólksins heldur auk þess myndarlega velli samkvæmt könnuninni.

Hér að neðan eru viðbótargreining á könnuninni með upplýsingum sem flestar hafa ekki birst opinberlega áður:
Samfylkingin er stærst í öllum kjördæmum á landinu. Mest fylgið er í Reykjavíkurkjördæmi norður, þar sem 30,1 prósent kjósenda segjast styðja okkur, en fylgið er vel yfir 20 prósent alls staðar hringinn í kringum landið.
Mesta aukningin frá kosningum er annars vegar í Suðurkjördæmi, þar sem fylgið hefur farið úr 17,3 í 25,7 prósent frá því að kosið var síðast, og í Norðvesturkjördæmi, þar sem fylgið hefur farið úr 15,9 í 21,8 prósent á sama tíma.
Samfylkingin er stærsti flokkurinn hjá öllum tekjuhópum og nýtur svipaðs fylgis hjá þeim öllum, líkt og jafnaðarflokki sæmir. Við erum líka langvinsælasti flokkurinn hjá háskólamenntuðum og innan skekkjumarka frá því að vera það hjá þeim sem eru með grunn- og framhaldsskólamenntun sem æðstu menntun.
Þegar horft er á hvað fólk kaus í síðustu kosningum þá hefur Samfylkingunni og Sjálfstæðisflokki tekist best að halda áfram sínum kjósendum. Okkur hefur auk þess lánast að höfða til kjósenda nær allra annarra flokka. Sérstaklega hafa verk Samfylkingarinnar það sem af er kjörtímabili náð til óákveðinna og þeirra sem kusu Pírata og Sósíalistaflokkinn í nóvember 2024.
