Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar vilja að aukinn meirihluta þurfi í sveitarstjórnum til að selja mikilvæg innviðafyrirtæki úr almannaeigu. Þeir leggja til, í tillögu sem er á dagskrá borgarstjórnarfundar í dag, að borgarstjórn Reykjavíkur beini því til Alþingis að lögfesta slíkt skilyrði, við endurskoðun sveitarstjórnarlaga.
Í tillögunni er miðað við að sala eða ráðstöfun á meirihlutaeign í slíkum fyrirtækjum þurfi stuðning aukins meirihluta, eða tvo þriðju hluta atkvæða í sveitarstjórn. Þar undir féllu meðal annars veitu- og orkufyrirtæki, hafnir og fjarskiptafyrirtæki sem ráða yfir grunninnviðum.
„Mikilvægir innviðir í eigu sveitarfélaga eru sameiginlegar eignir íbúa, sem oft hafa verið byggðar upp með fjárfestingum margra kynslóða. Ákvörðun um að selja slíkar eignir getur haft varanleg áhrif á samfélagið, meðal annars á aðgengi að grunnþjónustu, verðlagningu hennar, samkeppni og möguleika sveitarfélaga til að hafa áhrif á þróun innviða til framtíðar auk þess sem sala á innviðum getur haft áhrif á almannaöryggi, eins og í tilviki ljósleiðara. Slíkar ákvarðanir eiga því að krefjast víðtækrar pólitískrar samstöðu í stað þess að hægt sé að knýja þær í gegn með naumum meirihluta,“ segir í greinargerð með tillögu Samfylkingarinnar, sem lögð er fram í kjölfar áforma nýs meirihluta í borgarstjórn um sölu Ljósleiðarans og Carbfix.
Borgarfulltrúar flokksins vara við því að innviðir verði seldir til að mæta tímabundnum rekstrarvanda eða vegna pólitískrar stefnu um einkavæðingu.
Samfylkingin leggur áherslu á að grunninnviðir verði áfram í opinberri eigu, arðurinn renni til þjónustu við borgarbúa og verðlagning taki mið af hagsmunum almennings. Ákvarðanir um að láta slíkar eignir af hendi geti bundið hendur komandi kynslóða og eigi því að byggjast á víðtækri samstöðu.
