Dagur B. Eggertsson og Víðir Reynisson, þingmenn Samfylkingarinnar, lögðu áherslu á mikilvægi alþjóðalaga, vernd almennra borgara og aukinn alþjóðlegan þrýsting á Ísrael í sérstakri umræðu um stöðuna á Gaza og Vesturbakkanum á Alþingi fimmtudaginn 5. nóvember.
Dagur hóf umræðuna á því að lýsa þeim gríðarlegu hörmungum sem almenningur á Gaza hefur þurft að þola. Hann benti á að meira en 74.600 Palestínumenn hefðu verið skráðir fallnir frá 7. október 2023, samkvæmt heilbrigðisyfirvöldum á Gaza, þar af tugþúsundir barna. Þótt vopnahlé hefði tekið gildi í október í fyrra héldi mannfallið áfram og mannúðarástandið væri enn skelfilegt.
Vert er að taka fram að einn þingmanna Miðflokksins kallaði eftir því, er vopnahlé hafði tekið gildi, að forseti Alþingis tilnefndi Trump Bandaríkjaforseta til friðarverðlauna Nóbels, fyrir að hafa átt þátt í að koma því á. Það hefur elst vel.
Dagur vísaði í ræðu sinni meðal annars til orða yfirmanns UNICEF í Mið-Austurlöndum um að vopnahlé sem verndaði ekki börn hefði brugðist þeim. Hann lagði áherslu á að vopnahlé væri ekki það sama og friður ef öryggi almennra borgara væri ekki tryggt.
Hann beindi jafnframt sjónum að Vesturbakkanum, þar sem árásir ísraelskra landnema hefðu náð nýjum hæðum. Sameinuðu þjóðirnar hefðu skráð 397 árásir sem ollu meiðslum eða eignatjóni á fyrstu 26 dögum októbermánaðar. Dagur sagði útþenslu ólögmætra landtökubyggða grafa markvisst undan forsendum sjálfstæðs Palestínuríkis og þar með möguleikum á tveggja ríkja lausn.
Dagur minnti einnig á niðurstöður alþjóðlegra dómstóla og rannsóknarnefndar Sameinuðu þjóðanna um brot Ísraels á alþjóðalögum. Hann benti á að óháð rannsóknarnefnd Sameinuðu þjóðanna hefði komist að þeirri niðurstöðu að Ísrael hefði framið þjóðarmorð á Gaza, þótt endanlegur dómur Alþjóðadómstólsins í því máli lægi ekki fyrir.
Í ræðu sinni spurði Dagur utanríkisráðherra meðal annars hvernig Ísland hygðist beita sér fyrir vernd almennra borgara og aðgengi hjálparstofnana. Þá óskaði hann svara um næstu skref í baráttunni gegn ólögmætum landtökubyggðum, meðal annars hvort Ísland hygðist setja eigin reglur um viðskiptatakmarkanir eða vinna að sameiginlegum evrópskum aðgerðum.
Vatni og skatttekjum haldið frá Palestínumönnum
Víðir Reynisson tók einnig til máls fyrir hönd Samfylkingar og beindi sjónum sínum sérstaklega að ástandinu á Vesturbakkanum. Hann rifjaði upp eigin reynslu af störfum þar, þar sem hann hefði meðal annars fundað með starfsfólki palestínskra ráðuneyta um undirbúning viðbragða við hamförum.
Víðir nefndi tvö dæmi um þær kerfisbundnu takmarkanir sem Palestínumenn búa við og fá minni athygli en bein hernaðarátök. Annars vegar væri um að ræða aðgang að vatni. Hann sagði Palestínumenn á Vesturbakkanum hafa rúmlega 80 lítra af vatni til daglegra nota á mann, á meðan Ísraelar á sama svæði hefðu 247 lítra. Þá væru palestínskir bændur háðir leyfum og skömmtun Ísraela við nýtingu vatns til ræktunar.
Hins vegar fjallaði Víðir um skatttekjur palestínsku heimastjórnarinnar. Ísrael innheimti um tvo þriðju hluta tekna hennar en hefði hætt að skila þeim. Uppsafnaðar tekjur sem haldið væri eftir nálguðust sex milljarða Bandaríkjadala og heimastjórnin hefði þurft að draga verulega úr útgjöldum sínum.
Víðir hvatti utanríkisráðherra til að fylgja eftir sameiginlegri yfirlýsingu tólf ríkja um aðgerðir gegn ólögmætum landtökubyggðum og beita viðskiptaþvingunum.
„Smáríki sem byggir öryggi sitt á virkni þjóðaréttar hefur ekki efni á öðru,“ sagði Víðir að lokum.
Mikilvægt að standa vörð um samstöðu um alþjóðalög
Í síðari ræðu sinni þakkaði Dagur fyrir umræðuna og svör Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra. Hann sagði tilgang hennar meðal annars hafa verið að draga fram þann breiða stuðning sem enn væri á Alþingi við grundvallarstefnu Íslands í utanríkismálum: frið, alþjóðalög, mannréttindi og sjálfsákvörðunarrétt þjóða.
Dagur minnti á að Ísland hefði viðurkennt sjálfstæði Palestínu árið 2011, undir forystu Össurar Skarphéðinssonar, þáverandi utanríkisráðherra. Um þá ákvörðun hefði náðst breið samstaða á Alþingi og Ísland verið langt á undan mörgum öðrum ríkjum.
Hann benti á að á undanförnum tveimur árum hefði fjöldi ríkja bæst í hóp þeirra sem viðurkenna Palestínu. Mikilvægt væri að Ísland ynni með öðrum ríkjum að því að auka þrýsting og nýta þau tækifæri sem kynnu að skapast til að ná raunverulegum árangri í friðarmálum.
Dagur sagði skiljanlegt að fólk upplifði vanmátt gagnvart hörmungunum og erfiðleikunum við að koma málum í betra horf. Því væri þó enn mikilvægara að standa saman um alþjóðalög og mannréttindi og vinna með öðrum þjóðum að lausnum sem skiluðu almenningi á Gaza, Vesturbakkanum og í Mið-Austurlöndum öllum raunverulegum árangri.
