„Sumt verður ekki metið til fjár“

„Hvernig lífsgæði viljum við tryggja þegnum okkar og er hægt að meta þau til fjár?“

Anna María Jónsdóttir, varaþingmaður Samfylkingarinnar sem leysir Sigmund Erni Rúnarsson af, spurði þingheim að þessu í tilefni af fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar sem var lögð fram í dag.

Í ræðunni var bent á að umræða um rekstur bókasafna, leikhúsa, listasafna og félagsmiðstöðva þyrfti að snúast um meira en útgjöldin ein. Spyrja yrði hvað það myndi kosta samfélagið ef þessari starfsemi væri ekki haldið úti.

„Hvernig reiknum við út efnahagsleg áhrif af veittri þjónustu, því að þau eru augljóslega meiri en launakostnaður þeirra sem þjónustuna veita?“

Hinum megin við borðið væru einstaklingar á öllum aldri, með ólíkar þarfir og í mismunandi stöðu. Ungmenni sæktu félagsmiðstöðvar þar sem sérhæft starfsfólk sinnti félagslegum þörfum þeirra og fengju leiðsögn við val á lesefni á bókasöfnum. Leikhús og listasöfn legðu sig jafnframt fram um að mæta áhuga þeirra.

Eldra fólk sækti félagsskap, fræðslu og afþreyingu í þjónustumiðstöðvum þar sem boðið væri upp á fjölbreytta dagskrá. Þá hefði sérhæft starfsfólk atvinnu af því að styðja fólk til atvinnuþátttöku og virkni í samfélaginu.

Í því samhengi var í ræðunni vísað til þjónustu sem hefði verið aflögð við sumarlok eftir að hafa verið metin fjárhagslega óarðbær.

„Má spyrja sig að hvaða leyti sú ákvörðun skilaði raunverulegum ábata fyrir samfélagið. Það er ekki gott að segja.“

Að lokum var lögð áhersla á að horfa þyrfti til langtímaáhrifa þess að skerða þjónustu sem stæði vörð um menningu, samfélag og lýðheilsu.

„Sumt verður ekki metið til fjár. Við verðum að spyrja okkur hvað það muni kosta okkur til lengri tíma ef við höggvum of nærri kjarna samfélags okkar, menningararfi okkar og lýðheilsu.“

Kratinn þakkar fyrir góða brýningu frá Önnu Maríu og gæti ekki verði meira sammála, við eigum að búa í höfuðborg!