Íbúar landsbyggðarinnar eiga að geta sótt þjónustu, heimsótt fjölskyldu og tekið þátt í samfélagslífinu án þess að ferðakostnaður verði óyfirstíganlegur þröskuldur. Innanlandsflugið er mörgum nauðsynleg tenging við höfuðborgina, þar sem stór hluti opinberrar þjónustu er staðsettur. Áhyggjur af hækkandi kostnaði eru því bæði skiljanlegar og réttmætar.
Þegar fyrstu áformin um breytingar á Loftbrú voru kynnt fyrir síðustu helgi lá fljótt fyrir að upphæðin mætti ekki þörfum fólks. Ríkisstjórnin og stjórnarþingmenn brugðust hratt við. Með samtölum og samvinnu náðist niðurstaða um að bæta 200 milljónum króna við þær 600 milljónir sem fyrirhugaðar voru til Loftbrúar árið 2027.
Nú er því gert ráð fyrir 800 milljóna króna framlagi, því hæsta til verkefnisins í krónum talið. Það er þriðjungshækkun frá upphaflegri áætlun.
Þau sem gerðu ekkert þegar þau stýrðu
Niðurgreiðslan verður nú 18 þúsund krónur fyrir ferð fram og til baka. Áfram verður hægt að nýta úrræðið fyrir allt að sex flugleggi á ári. Eydís Ásbjörnsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi, lýsti miklum létti yfir viðbótinni í samtali við RÚV og lagði áherslu á að stuðningurinn þyrfti að endurspegla verðþróun.
Ábyrgð ríkisstjórna Sjálfstæðisflokks, Framsóknar og Vinstri grænna á þeirri stöðu sem Loftbrúin var í er þó mikil. Fyrir liggur að aðgerðin var mikilvæg fyrir landsbyggðina þegar hún hóf göngu sína árið 2020 en henni fylgdi þó ábyrgð um að tryggja fjármögnun sem stæðist raunverulega notkun og verðþróun. Þessar ríkisstjórnir héldu grunnfjárheimildinni í 600 milljónum þótt kostnaðurinn væri kominn í tæpar 634 milljónir árið 2023 og tæpar 712 milljónir árið 2024.
Því þurfti sífellt að sækja viðbótarfjármagn í fjáraukalög þar sem grunnframlagið hélt hvorki í við verðlag né þann kostnað sem blasti við. Fulltrúar flokkanna sem sátu við stjórnvölinn höfðu ítrekuð tækifæri til að bregðast við þeirri þróun, en gerðu það ekki. Því er holur hljómur í kröfu þeirra um aukna fjármögnun nú og hann kallar á svör um eigin forgangsröðun þegar þeir höfðu völdin.
Fargjöld hækkað umfram verðlag
Kerfisbreytingin sem felur í sér fasta niðurgreiðsla gerir útgjöld ríkisins fyrirsjáanlegri og ríkið tekur ekki sjálfkrafa á sig hluta hverrar verðhækkunar flugfélaganna. Það liggur nefnilega fyrir að fargjöld í innanlandsflugi hækkuðu um 55,9 prósent frá september 2020 til september 2026, á meðan almennt verðlag hækkaði um 43,2 prósent.
Með öðrum orðum hafa flugfargjöldin hækkað umfram verðlag frá því að Loftbrúin varð að veruleika, sem er í andstöðu við þann tilgang sem hún átti að hafa. Markmiðið var að lækka kostnað íbúa, ekki fjölga krónunum sem fer til flugfélagsins.
Áfram þarf að fylgjast sérstaklega með stöðu þeirra sem þurfa að ferðast með skömmum fyrirvara. Metframlag tryggir ekki eitt og sér að hver einasti farþegi fái hærri niðurgreiðslu. Verkefnið er að láta aukið fjármagn og breytt fyrirkomulag skila raunverulegum stuðningi til fólksins sem heldur byggðum landsins lifandi.
