Í samtali Kristrúnar Frostadóttur við Aðalheiði Ámundadóttur blaðakonu á Gímaldinu, sem birt var í hlaðvarpi Gímaldsins fyrr í mánuðinum, var rætt um samstarfið við Flokk fólksins í ríkisstjórn. Formaður Samfylkingarinnar talaði vel um samstarfsflokkinn, eins og hún hefur raunar gert oft áður – og sagði Samfylkingu og Flokk fólksins eiga samleið í mörgum málum.
„Ég held reyndar að Flokkur fólksins sé eitt það sem besta sem hefur komið fyrir íslensk stjórnmál. Ég held að þau séu oft mjög misskilin sem flokkur,“ sagði Kristrún og bætti svo við að það væri alltaf verið að tala um það, allavega frá því að hún myndi eftir pólitík, að það skipti máli að við værum með fólk í pólitík og fólk að stjórna landinu sem skildi veruleika fólks og væri jarðtengt og ekki bara úr efstu lögum samfélagsins.
„Flokkur fólksins hefur verið byggður upp af einstaklingum sem hafa gengið í gegnum allskonar hluti, hafa þurft að mæta kerfinu. Þau stundum koma fram með aðeins öðruvísi hætti en til dæmis ég – en ég er bara alin upp við allt öðruvísi aðstæður en til dæmis Inga. Ég held það hafi verið mín mesta blessun í lífinu – nú hef ég unnið mjög víða og held að ég hafi ekki lært eins mikið af neinum og Ingu Sæland. Ég fyllist bara auðmýktar á hverjum einasta degi sem ég vinn með henni og við ættum að vera heppin að hafa konu eins og hana í pólitík,“ sagði Kristrún.
„Flokkur fólksins er stofnaður að hluta til af fólki sem hafði kosið Samfylkinguna og var ósátt við Samfylkinguna eftir hrun, eftir hrunstjórnina og vildi gera breytingar til baka í almannatryggingamálum og fannst Samfylkingin hafa yfirgefið sinn kjarna,“ sagði Kristrún.
Hún lét þess síðan getið að hún væri að segja þetta sem áhorfandi – það hefðu verið erfiðir tímar eftir hrun og fólk ráðist í ákvarðanir sem voru erfiðar en skiljanlegar á þeim tíma en þurfti svo að vinda ofan af aftur. „Flokkur fólksins hefur hreyft við umræðunni þar,“ sagði Kristrún.
Samfylkingin lofaði því að tengja lífeyri við launavísitölu
Í umræðunni heyrist stundum að Flokkur fólksins hafi fengið allt sem þau vilja í stjórnarsamstarfinu, til dæmis tengingu lífeyris og launa. Kristrún rifjaði hins vegar upp, spurð um þetta, að þetta hefði líka verið áherslumál Samfylkingar fyrir síðustu kosningar.
„Fólk getur bara flett því upp, við lofuðum því eða töluðum fyrir því konkret, að lífeyrir fylgdi launum. Þetta er meðal annars stefnumál Samfylkingar. Ég styð þetta. Þegar sú umræða kom upp um að ég væri einhvernveginn að gefa Ingu þetta… ég meina, auðvitað er hún drifkraftur og það hjálpaði mér að hafa hana með í þessu, en það er staðreynd [að þetta var líka stefnumál Samfylkingar]. Það er eins varðandi hjúkrunarheimilin. Eitt af því sem Samfylkingin lofaði í Öruggum skrefum í heilbrigðismálum fyrir kosningar var stórtækt þjóðarátak í uppbyggingu hjúkrunarheimila. Og það vill bara þannig til að þetta er mjög náttúrlegt samstarf fyrir Samfylkinguna að vera með Flokki fólksins, vegna þess að við erum samstíga um þetta,“ sagði Kristrún.
Hún ræddi einnig um að það væri oft verið að stilla því þannig upp að einhver einn hefði fengið meira en hinn út úr ríkisstjórnarsamstarfinu.
„En það vill bara þannig til að í þessum stóru mikilvægu velferðarmálum hjá Flokki fólksins erum við mjög sammála. En hefur hjálpað að hafa Ingu að keyra þetta áfram? Ekki spurning – og ég er mjög þakklát fyrir það,“ sagði Kristrún.
